Útskriftarsýning Masterclass Ástu & Kára var haldin í húsakynnum Ey Agency á dögunum. Það voru ljósmyndararnir Ásta Kristjánsdóttir og Kári Sverriss sem héldu námskeiðið sem endaði með þessari flottu útskriftarsýningu.
Ljósmyndarar, stílistar og fyrirsætur létu sig ekki vanta á sýninguna og gæddu sér á ljúffengum drykkjum. Jakbo Eggertsson blandaði drykkina en hann gerði góða hluti á Sao Paulo á dögunum þegar hann tók þátt í barþjónakeppni.