Vesturbæingar létu sig ekki vanta þegar Þorrablót KR fór fram í Frostaskjóli á laugardaginn. Allt hressasta fólk landsins var mætt til leiks og borðaði súrmat og annað góðgæti undir tryggri veislustjórn Gumma Ben og Evu Ruzu.
Sjónvarpsstjarnan Gísli Marteinn Baldursson var á meðal gesta á Þorrablótinu. Knattspyrnumaðurinn Theódór Elmar Bjarnason lét sig heldur ekki vanta. Hjónin Erla Björnsdóttir sálfræðingur og Hálfdán Steinþórsson eigandi Vinnustofu Kjarvals
Mikil spenna var fyrir Þorrablóti KR eins og venjulega. „Það er löngu uppselt,“ segir Þórhildur Garðarsdóttir formaður KR í viðtali við Morgunblaðið á laugardaginn.
Eins og sjá má skemmti fólk sér einstaklega vel.