Það var rífandi stemning á djamminu Reykjavík um síðustu helgi. Á meðan eldra fólkið skemmti sér á Þorrablóti KR í Frostaskjóli mætti unga og ferska fólkið í miðbæinn. Dansþyrst fólk skellti sér á latínó kvöld á skemmtistaðnum EXIT Club.
Eins og sjá má á myndskeiði sem tekið var á skemmtistaðnum var stemningin gríðarleg. Ef þú hefur ekki farið á skemmtistað eftir miðnætti í mörg ár þá veistu hvernig djammið í Reykjavík 2024 er eftir áhorfið!
Í spilaranum hér að ofan má sjá myndskeiðið.