Tískudrottningar og fagurkerar landsins sameinuðust í versluninni Andrá Reykjavík á Laugaveginum síðastliðið miðvikudagskvöld til að fagna því að danska tískumerkið Ganni væri lent í versluninni.
Það vantaði ekkert upp á stemninguna í partíinu sem ljósmyndarinn Saga Sig festi á filmu, en það var engin önnur en DJ Karítas sem hélt stuðinu uppi á meðan gestir skoðuðu vörurnar frá vinsæla tískuhúsinu, en hönnun Ganni er framsækin og einkennist af leikgleði.
Ganni var stofnað árið 2000 af Frans Truelsen í Danmörku. Vinsældir merkisins jukust verulega árið 2009 þegar Reffstrup-hjónin tóku við fyrirtækinu, en þau hafa undanfarin ár sett svip sinn á skandinavíska tísku og mótað það sem kallað er „scandi 2.0“. Hjónin leggja áherslu á sjálfbærni og umhverfismál og hafa verið í fararbroddi á því sviði.
Steinunn Björg Hrólfsdóttir og Eva Katrín Baldursdóttir, eigendur Andrár Reykjavík, eru í skýjunum eftir vel heppnað partí og segja að það fylgi því mikil gleði að geta boðið upp á fjölbreytt úrval frá tískuhúsinu.
„Ganni hefur lengi verið í uppáhaldi hjá okkur og við höfum frá því við opnuðum viljað fá það hingað inn,“ segir Steinunn Björg.
„Merkið passar svo ótrúlega vel inn hjá okkur og er í miklu uppáhaldi hjá okkar viðskiptavinum þannig að við fundum að eftirvæntingin var mikil og kvöldið heppnaðist ótrúlega vel,“ bætir Eva Katrín við.
Sigríður Margrét Ágústsdóttir, samfélagsmiðlastjóri Andrár Reykjavík, fagnaði komu merkisins og segir það lengi hafa verið í uppáhaldi hjá sér. „Það sem heillar mig mest við merkið er sniðin. Ganni leggur mikla áherslu á vönduð og falleg snið. Það er svo mikilvægt að flíkin passi vel og að manni líði vel í henni,“ segir hún.
Það eru þó ekki bara tískuunnendur á Íslandi sem eru heillaðir af merkinu heldur líka stjörnur á borð við Kourtney Kardashian, Hailey Bieber, Paulina Porizkova og Offset.