Íslenska húðvörumerkið Blue Lagoon Skincare hefur opnað verslun á Keflavíkurflugvelli. Af því tilefni var slegið upp litlu teiti í versluninni.
„Ný verslun Blue Lagoon Skincare er glæsileg viðbót í verslunarflóruna á KEF og býður upp á framúrskarandi vöruframboð fyrir bæði Íslendinga og erlenda ferðamenn. Húðvörur Bláa Lónsins eru margverðlaunaðar og þekktar um allan heim og það er frábært að áfram verði hægt að nálgast þær í flugstöðinni þar sem margir vilja gera góð kaup á fríhafnarverði,“ segir Gunnhildur Erla Vilbergsdóttir, deildarstjóri verslunar og veitinga á Keflavíkurflugvelli í fréttatilkynningu.
Í versluninni er sérstakur húðvörubar þar sem gestir geta prófað vörurnar.
„Við leggjum mikið upp úr skynrænni upplifun gesta okkar í versluninni og er húðvörubarinn hluti af því. Starfsfólk okkar er sérþjálfað til að aðstoða viðskiptavini við val á húðvörum sem henta þeirra húðgerð, svo við hvetjum ferðalanga til að koma við og upplifa,“ segir Eyrún Sif Eggertsdóttir, forstöðumaður verslana hjá Blue Lagoon Skincare í fréttatilkynningu.
Ása Brynjólfsdóttir.
Ljósmynd/Víðir Björnsson
Patricia Tortolani og Lilja Ósk Sigurðardóttir.
Ljósmynd/Víðir Björnsson
Margrét Friðriksdóttir og Bylgja Dögg Rúnarsdóttir.
Ljósmynd/Víðir Björnsson
Igor Micevic, Rakel Jónsdóttir og Jóhannes Einar Valberg.
Ljósmynd/Víðir Björnsson
Geir Ulrich Skaftason, Andri Ómarsson, Ómar Tryggvason og Inga Rós Reynisdóttir.
Ljósmynd/Víðir Björnsson
Karítas Óðinsdóttir.
Ljósmynd/Víðir Björnsson
Páll Svavar Pálsson, Rósella B. Pétursdóttir og Birta Aradóttir.
Ljósmynd/Víðir Björnsson
Patricia Tortolani og Lilja Ósk Sigurðardóttir.
Ljósmynd/Víðir Björnsson
Vincent Nida og Melissa Bramowitz.
Ljósmynd/Víðir Björnsson
Páll Svavar Pálsson og Rósella B. Pétursdóttir.
Þórunn Marinósdóttir og Hólmfríður Einarsdóttir.
Ljósmynd/Víðir Björnsson
Sigurður Þorsteinsson og Gunnhildur Erla Vilbergsdóttir.
Ljósmynd/Víðir Björnsson
Helga Árnadóttir og Ása Brynjólfsdóttir.
Ljósmynd/Víðir Björnsson
Nila Flores Sicat, Eyrún Sif Eggertsdóttir, Marisa Santiago Sicat, Hólmfríður Erna Kjartansdóttir, Signý S. Skúladóttir og Íris Guðmundsdóttir.
Ljósmynd/Víðir Björnsson