Forsetamakinn Björn er góður grillari

Grillmeistararnir.
Grillmeistararnir. Ljósmynd/Þóra Ólafsdóttir

Það var mikil stemning sem myndaðist í Grósku í gærdag þegar hin árlega grillveisla í viðskiptahraðlinum Startup SuperNova og BBQ & Pitch fór í gang. Frumkvöðlar, sprotar og fjárfestar flykktust í hugmyndahús nýsköpunar til að næla sér í gómsætan grillborgara áður en þátttakendur úr Startup Supernova fóru með svokallaðar lyftukynningar í lyfturum. 

Sýndu glæsilega grilltakta

Hitað var upp í grillunum þegar grillmeistarar mættu í Grósku en hamborgararnir kláruðst rétt áður en sprotarnir fóru með kynningarnar sínar, enda vel þjálfuð liðsheild á grillinu sem þekkti hlutverk sitt. Frumkvöðlar fengu að snæða á bragðbombum frá Birni Skúlasyni, forsetaherra og stofnanda Just Björn, Áslaugu Örnu Sigurbjörnsdóttur, háskóla-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra, Margréti Tryggvadóttur, forstjóra Nova, Helgu Valfells, meðeiganda fjárfestingasjóðsins Crowberry Capital og Sigurði Ólafssyni, framkvæmdastjóra Gróðurhússins, sprotaseturs Grósku. 

Margrét Tryggvadóttir forstjóri Nova var í miklu stuði.
Margrét Tryggvadóttir forstjóri Nova var í miklu stuði. Ljósmynd/Þóra Ólafsdóttir

Sprotafyrirtækin sem taka þátt í Startup SuperNova og fóru með lyftukynningar voru FairGame, GrowthApp, JarðarGreining, Massif.Network, Medvit Health, Neurotic, TAPP, Thorexa, The Gyna-app, VibEvent.

„Magnað að sjá hvað gæðin í sprotaumhverfinu vaxa á hverju ári“

„Viðburðurinn gekk vonum framar, enda ekki annað hægt með þetta úrvalalið á grillinu. Við höldum reglulega lyftukynningar í okkar verkefnum hjá KLAK og því fannst okkur tilvalið í ár að ýta frumkvöðlunum enn meira út fyrir þægindarammann og taka lyftukynninguna í skæralyftu sem kom virkilega skemmtilega út. Þetta er í fimmta sinn sem við keyrum Startup SuperNova og það er magnað að sjá hvað gæðin í sprotaumhverfinu vaxa á hverju ári”, er haft eftir Frey Friðfinnssyni, verkefnastjóra Startup SuperNova hjá KLAK - Icelandic Startups.

Steinarr Logi Nesheim hjá Massif.Network
Steinarr Logi Nesheim hjá Massif.Network Ljósmynd/Þóra Ólafsdóttir

„Það er einstaklega ánægjulegt að sjá hvað jarðvegurinn er frjór og framtíðin björt í nýsköpunarsenunni og það er hægt að segja að teymin í ár séu einstaklega sterk og þeirra verkefni eru án efa meðal þeirra sem við munum sjá meira af á næstu árum. Startup SuperNova fer stigvaxandi ár frá ári og gaman að sjá þann fjölda sem mætti á viðburðinn sem sýnir okkur að áhuginn og meðbyrinn er mikill,” segir Sigurbjörn Ari Sigurbjörnsson, markaðsstjóri Nova.

Elva Sara Ingvarsdóttir hjá TAPP
Elva Sara Ingvarsdóttir hjá TAPP Ljósmynd/Þóra Ólafsdóttir
Daníel Ásgeirsson hjá Medvit Health
Daníel Ásgeirsson hjá Medvit Health Ljósmynd/Þóra Ólafsdóttir
Líf og fjör var á viðburðinum.
Líf og fjör var á viðburðinum. Ljósmynd/Þóra Ólafsdóttir
Hanna Lilja Oddgeirsdóttir hjá The Gyna App.
Hanna Lilja Oddgeirsdóttir hjá The Gyna App. Ljósmynd/Þóra Ólafsdóttir
Eyþór Helgason einn stofnanda Skarps og Startup
Eyþór Helgason einn stofnanda Skarps og Startup Ljósmynd/Þóra Ólafsdóttir
Freyr Friðfinnsson verkefnastjóri Startup SuperNova.
Freyr Friðfinnsson verkefnastjóri Startup SuperNova. Ljósmynd/Þóra Ólafsdóttir
Geoffrey Stekelenburg hjá Neurotic
Geoffrey Stekelenburg hjá Neurotic Ljósmynd/Þóra Ólafsdóttir
Glaðir frumkvöðlar í Grósku.
Glaðir frumkvöðlar í Grósku. Ljósmynd/Þóra Ólafsdóttir
Jóhannes Ólafur Jóhannesson hjá FairGame.
Jóhannes Ólafur Jóhannesson hjá FairGame. Ljósmynd/Þóra Ólafsdóttir
Morgane Priet-Mahéo hjá JarðarGreiningu
Morgane Priet-Mahéo hjá JarðarGreiningu Ljósmynd/Þóra Ólafsdóttir
Sigurbjörn Ari Sigurbjörnsson markaðsstjóri Nova.
Sigurbjörn Ari Sigurbjörnsson markaðsstjóri Nova. Ljósmynd/Þóra Ólafsdóttir
Mikið var rætt og „minglað” í BBQ & Pitch
Mikið var rætt og „minglað” í BBQ & Pitch Ljósmynd/Þóra Ólafsdóttir
Það var stutt í gleðina á BBQ & Pitch.
Það var stutt í gleðina á BBQ & Pitch. Ljósmynd/Þóra Ólafsdóttir
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál