Björgvin Einar Sævarsson, eigandi Kef Guesthouse og Carpark bílastæðaþjónustunnar í Reykjanesbæ, og fitness-drottningin, Ester Soffía Jóhannesdóttir, eru nýtt par.
Þau fagna nú nýju ástinni í sólinni á Spáni enda hvergi betra að vera til að rækta nýtt samband en einmitt í sól og hita.
Ester kann svo sannarlega að slaka á en á Instagram-reikningi sínum deildi hún mynd af sér hvíla sig á stórri gúmmíönd.
Parið á samtals fjögur börn með fyrri mökum.
Smartland óskar þeim til hamingju með ástina!