Það var vel mætti þegar eigendur húsgagnaverslunarinnar Verona slógu upp teiti í gær til að fagna ítalska vörumerkinu Molteni&C sem er fáanlegt í yfir 80 löndum. Ragnhildur Steinunn Jónsdóttir sjónvarpskona festi kaup á verslununum Duxiana og Gegnum glerið í fyrra og í framhaldinu breyttu þau nafninu í Verona. Hún rekur verslunina ásamt eiginmanni sínum, Hauki Inga Guðnasyni og vinhjónunum Martinu Vigdísi Nardini og Jóni Helga Erlendssyni.
Innanhússarkitektarnir Rut Káradóttir, Hanna Stína Ólafsdóttir og Ragnar Sigurðsson létu sig ekki vanta en þau eiga það sameiginlegt að elska Ítalíu eftir að hafa lært fagið þar. Hafsteinn Júlíusson og Karitas Sveinsdóttir úr Haf Studio létu sig heldur ekki vanta og heldur ekki Edda Hermannsdóttir markaðs- og samskiptastjóri Íslandsbanka, Finnur Oddsson framkvæmdastjóri Haga, Brynja Baldursdóttir, forstjóri Motus og eiginmaður hennar Jón Guðni Ómarsson, bankastjóri Íslandsbanka. Þar voru líka kunnugleg andlit af sjónvarsskjánum eins og Sigrún Ósk Kristjánsdóttir og Eva María Jónsdóttir miðaldafræðingur og jógakennari.
Brynja Kristinsdóttir, Rut Káradóttir, Hanna Stína Ólafsdóttir og Ragnar Sigurðsson.
Ljósmynd/Marino Thorlacius
Ragnhildur Gísladóttir, Sigríður Soffía og Birkir Kristinsson.
Ljósmynd/Marino Thorlacius
Ríkharður Daðason, Edda Hermannsdóttir og Eiður Daði Ríkharðsson.
Ljósmynd/Marino Thorlacius
Ragnar Sigurðsson, Hanna Stína Ólafsdóttir, Brynja Kristinsdóttir og Rut Káradóttir.
Ljósmynd/Marino Thorlacius
Sandra Hauksdóttir og Sigurgísli Bjarnason.
Ljósmynd/Marino Thorlacius
Sigríður Soffía og Martina Vigdís Nardini.
Ljósmynd/Marino Thorlacius
Jón Helgi Erlendsson, Martina Vigdís Nardini, Lorenzo Galbiati, Ragnhildur Steinunn Jónsdóttir og Haukur Ingi Guðnason.
Ljósmynd/Marino Thorlacius
Steinþór Jónsson eigandi Hótel Keflavíkur og Hildur Sigurðardóttir.
Ljósmynd/Marino Thorlacius
Finnur Árnason, Edda Hermannsdóttir og Ríkharður Daðason.
Ljósmynd/Marino Thorlacius
Ragnhildur Steinunn Jónsdóttir og Haukur Ingi.
Ljósmynd/Marino Thorlacius
Ljósmynd/Marino Thorlacius
Birkir Kristinsson bankamaður og Jón Guðni Ómarsson bankastjóri Íslandsbanka.
Ljósmynd/Marino Thorlacius
Hafsteinn Júlíusson og Karitas Sveinsdóttir ásamt dóttur sinni.
Ljósmynd/Marino Thorlacius
Sigurpáll Scheving og Eva María Jónsdóttir.
Ljósmynd/Marino Thorlacius
Ingunn Marta og Dóra Gunnarsdóttir.
Ljósmynd/Marino Thorlacius
Lorenzo Galbiati frá Moltelini & C og Arndís Björnsdóttir.
Ljósmynd/Marino Thorlacius
Guðni Kjartansson, Hafþór Hafliðason, Ebba Guðný Guðmundsdóttir og Jón Þór Harðarson.
Ljósmynd/Marino Thorlacius