Skrautlegur vinahópur í banastuði!

Atli Þór Albertsson, Guðrún Kaldal, Jóhann G. Jóhannsson og Guðný …
Atli Þór Albertsson, Guðrún Kaldal, Jóhann G. Jóhannsson og Guðný Ósk Sigurgeirsdóttir.

Það var einstök gleðistemning í Þjóðleikhúsinu þegar íslenska stykkið Eltum veðrið var frumsýnt á föstudaginn. Þegar gesti bar að garði var búið að koma upp hjólhýsabyggð fyrir utan Þjóðleikhúsið þar sem leikarar sýningarinnar spiluðu og gítar líkt og fólk væri í Þjórsárdal eða í Þórsmörk. 

Stykkið fjallar um skrautlegan vinahóp sem fer í sína árlegu útilegu. Þessir útilegugestir eru með allt á hreinu og eru með rétta hjólhýsið í eftirdragi, rétta kjötið, sándboxið og nóg af hitaeiningasnuðum bjór! 

En nú er samt ekkert eins og það var, því það vantar eina í hópinn. Hver og einn er með sínar hugmyndir um það hvernig eigi að bregðast við nýrri stöðu og hin árlega samkoma vinahópsins tekur óvænta og stórvarasama stefnu. Veit Hjálmar um öskuna? Nær Guðrún að loka stóra málinu? Mun viðhafnarnámið nýtast Andra á toppnum? Þarf að fela vínið fyrir Rögnu? Og er David Clark allur þar sem hann er séður?

Landsþekktir leikarar

Eygló Hilmarsdóttir, Guðjón Davíð Karlsson, Hallgrímur Ólafsson, Hildur Vala Baldursdóttir, Hilmar Guðjónsson, Ilmur Kristjánsdóttir, Sigurður Sigurjónsson og Þröstur Leó Gunnarsson eru leikarar sýningarinnar. 

Leikhópurinn og Kjartan Darri Kristjánsson leikstýra verkinu og Sváfnir Sigurðarson sér um tónlistina. Ilmur Stefánsdóttir leikmyndahönnuður hannaði leikmyndina og Þórhildur Sunna Jóhannsdóttir sá um búningahönnun. Jóhann Bjarni Pálmason sá um lýsingu og hljóðhönnun var í höndum Arons Þórs Arnarssonar. 

Júlía Stefánsdóttir og Steinunn Ólína Þorsteinsdóttir.
Júlía Stefánsdóttir og Steinunn Ólína Þorsteinsdóttir.
Una Torfadóttir í góðum félagsskap.
Una Torfadóttir í góðum félagsskap.
Ingibjörg Ösp Stefánsdóttir, Halla Tómasdóttir, Björn Skúlason og Magnús Geir …
Ingibjörg Ösp Stefánsdóttir, Halla Tómasdóttir, Björn Skúlason og Magnús Geir Þórðarson.
Halla Tómasdóttir og Björn Skúlason létu sig ekki vanta.
Halla Tómasdóttir og Björn Skúlason létu sig ekki vanta.
Karitas Ríkharðsdóttir og Kristrún Ásta Arnfinnsdóttir.
Karitas Ríkharðsdóttir og Kristrún Ásta Arnfinnsdóttir.
Halla Tómasdóttir og Björn Skúlason eru hér á spjalli við …
Halla Tómasdóttir og Björn Skúlason eru hér á spjalli við Magnús Geir Þórðarson.
Leikarara sýningarinnar héldu uppi stuðinu fyrir utan Þjóðleikhúsið.
Leikarara sýningarinnar héldu uppi stuðinu fyrir utan Þjóðleikhúsið.
Mæðgurnar Guðrún Sóley Gestsdóttir og Guðbjörg Garðarsdóttir.
Mæðgurnar Guðrún Sóley Gestsdóttir og Guðbjörg Garðarsdóttir.
Katrín Halldóra Sigurðardóttir í góðum félagsskap.
Katrín Halldóra Sigurðardóttir í góðum félagsskap.
Oddur Júlíusson og Ebba Katrín Finnsdóttir.
Oddur Júlíusson og Ebba Katrín Finnsdóttir.
Jón Þ. Kristjánsson og Kjartan Darri Kristjánsson.
Jón Þ. Kristjánsson og Kjartan Darri Kristjánsson.
Hallgrímur og Ilmur tóku lagið fyrir utan Þjóðleikhúsið.
Hallgrímur og Ilmur tóku lagið fyrir utan Þjóðleikhúsið.
Gréta Sigurðar og Silja Aðalsteinsdóttir.
Gréta Sigurðar og Silja Aðalsteinsdóttir.
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert
Linda Sigríður Baldvinsdóttir
Linda Sigríður Baldvinsdóttir
Guðrún Kristjánsdóttir
Guðrún Kristjánsdóttir
Lára Guðrún Sigurðardóttir
Lára Guðrún Sigurðardóttir
Hildur Jakobína Gísladóttir
Hildur Jakobína Gísladóttir
Júlía heilsumarkþjálfi
Júlía heilsumarkþjálfi

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

endurskoðandi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál

lýtalæknir svarar spurningum lesenda