Það var vel mætt á Spritz Venue á Rauðárárstíg þegar Stylpro-andlitsgrímunum var fagnað. Um er að ræða led-grímur sem eiga að yngja andlitið upp og gera ósjónuna frísklegri.
Þekktar þokkagyðjur mættu í teitið eins og Manuela Ósk Harðardóttir fyrrverandi fegurðardrottning, Gerður Jónsdóttir einkaþjálfari og Lilja Ósk Sigurðardóttir snyrtivörusérfræðingur.
Binni Glee lét sig ekki vanta og heldur ekki Gunnar Skírnir sem oft gengur undir nafninu annar af Æði-tvíburunum.
Boðið var upp á hressandi veitingar en eins og sést á myndunum var gleðin við völd.