Stjórnmálaflokkurinn Viðreisn var með kosningavöku á Hótel Borg í gærkvöldi. Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir formaður flokksins hélt uppi stuðinu í kolsvartri dragt með smóking sniði.
Allir helstu leikmenn flokksins voru mættir til þess að fagna kosningasigri.
Jón Gnarr lét sig til dæmis ekki vanta og heldur ekki eiginkona hans, Jóga Gnarr, sem er lifandi goðsögn svo ekki sé meira sagt.
Þar var líka Aðalsteinn Leifsson fyrrverandi ríkissáttasemjari og Berglind Guðmundsdóttir hjúkrunarfræðingur og Instagram-stjarna. Sigmar Guðmundsson þingmaður Viðreisnar var í stuði en þó ekki í meira stuði en Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir þingmaður Viðreisnar sem skein skært þetta kvöld.
Katrín Sigríður Júlíu Steingrímsdóttir var áberandi vel klædd í appelsínugulum pels en hún er varaþingmaður Viðreisnar og mun leysa mannskapinn af. Jakob Birgisson grínisti og sonur Samfylkingarkonunnar, Sigríðar Ingibjargar Ingadóttur, var líka á Hótel Borg - ekki í Kolaportinu þar sem flokksvinir móður hans skemmtu sér. Það er ekki hægt að vera á tveimur stöðum á sama tíma.