Hugmyndahraðhlaup Gulleggsins fór fram helgina 4.–5. janúar 2025 í Grósku, þar sem háskólanemar frá landinu öllu komu saman til að þróa nýsköpunarhugmyndir og leysa áskoranir frá nokkrum bakhjörlum Gulleggsins. Fyrsta helgi ársins sannaði að ungt fólk er tilbúið í áskoranir nýs árs, enda mættu þátttakendur fullir orku og sköpunargleði til að takast á við krefjandi verkefni.
Hugmyndahraðhlaup Gulleggsins er hluti af undirbúningi fyrir Gulleggið, stærstu frumkvöðlakeppni landsins, sem haldin verður 14. febrúar 2025 í Grósku. Viðburðurinn markaði öfluga byrjun á nýsköpunarári þar sem ungt fólk sýndi fram á óþrjótandi sköpunarkraft og metnað til að móta framtíð íslensks atvinnulífs
Áskoranir viðburðarins voru eftirfarandi:
- Elko: Þróa sjálfbærar og arðbærar lausnir sem styðja við hringrásarhagkerfi í raftækjaiðnaði.
- Reykjavíkurborg: Tryggja almennt aðgengi að loftslagstengdum gögnum til að stuðla að upplýstri ákvarðanatöku.
- Háskóli Íslands: Gera niðurstöður vísindarannsókna aðgengilegri og auðveldari í notkun fyrir fagfólk og fyrirtæki.
- Orkusalan: Auka vitund og skilning ungs fólks á mikilvægi raforku og hlutverki hennar í daglegu lífi og sjálfbærri framtíð.
- Össur: Endurnýta afskurði úr gervifótaframleiðslu til að draga úr sóun og auka sjálfbærni
„Það er ótrúlega verðmætt tækifæri fyrir þessa frumkvöðla að fá að spreyta sig á raunverulegum áskorunum stórra og flottra fyrirtækja eins og þeirra sem tóku þátt í þessu verkefni með okkur um helgina, ekki síst fyrir tengslanetið, að fá að leysa verkefnin að hluta með fyrirtækjunum sjálfum,” segir Ásta Sóllilja Guðmundsdóttir, framkvæmdastjóri KLAK - Icelandic Startups.
Sigurvegari Hugmyndahraðhlaupsins var teymið Samvís, sem þróaði vefsíðu sem brúar bilið milli vísinda og samfélags. Lausnin nýtir gervigreind til að gera vísindagögn aðgengilegri og notendavænni, sem auðveldar upplýsta ákvarðanatöku og eykur sýnileika rannsókna.
Sérstök verðlaun fengu svo Reddessu og Orku Kötturinn.
Samvís: Birgir Bragi Gunnþórsson, Jóhann Portal og Haukur Ingi S. Jónsson ásamt KLAK-teyminu.
Ljósmynd/Eygló Gísladóttir
Ríkharður Ólafsson.
Ljósmynd/Eygló Gísladóttir
Teymi Reddessu: Sölvi Smárason, Jóel Jens Guðbjartsson,Vigdís Ásgeirsdóttir ásamt Sófúsi Árna frá Elko.
Ljósmynd/Eygló Gísladóttir
Ríkharður Ólafsson og Huldar, háskólanemar.
Ljósmynd/Eygló Gísladóttir
Dómnefnd:: Sófús Árni, Heiða Halldórsdóttir, Ásta Sóllilja, Christophe Lecomte, Oddur Sturluson og Jenna Björk.
Ljósmynd/Eygló Gísladóttir
Kolfinna Kristínardóttir, verkefnastjóri KLAK.
Ljósmynd/Eygló Gísladóttir
Dómnefnd að störfum.
Ljósmynd/Eygló Gísladóttir
Orku Kötturinn: Hólmfríður Sylvía Haraldsdóttir, Sunna Magný Guðmundsdóttir, Kristján Freyr Kristjánsson frá 50 Skills, Ríkharður Ólafsson og Valtýr Ingason.
Ljósmynd/Eygló Gísladóttir
Vigdís Ásgeirsdóttir og Sölvi Smárason.
Ljósmynd/Eygló Gísladóttir
Hólmfríður Sylvía Haraldsdóttir.
Ljósmynd/Eygló Gísladóttir
Heiða Halldórsdóttir, markaðsstjóri og sviðsstjóri einstaklingssviðs hjá Orkusölunni.
Ljósmynd/Eygló Gísladóttir
Ahmad Lftikhar Khan og Anoop Anair kynna Huddle Hop lausnina.
Ljósmynd/Eygló Gísladóttir
Hugmyndahraðhlaup Gulleggsins.
Ljósmynd/Eygló Gísladóttir
Hugmyndavinna með fulltrúum Össurar: Ólína Björk Hjartardóttir, Faisal Farrukh Nawab, Yaroslav Flóki Pavlyuk og Christophe Lecomte.
Ljósmynd/Eygló Gísladóttir
Hugmyndavinna með fulltrúum fyrirtækja.
Ljósmynd/Eygló Gísladóttir
Beðið eftir úrslitum.
Ljósmynd/Eygló Gísladóttir
Sölvi Smárason ásamt Ástu Sóllilju Guðmundsdóttur.
Ljósmynd/Eygló Gísladóttir
Orku Kötturinn: Hólmfríður Sylvía Haraldsdóttir, Sunna Magný Guðmundsdóttir, Ríkharður Ólafsson og Valtýr Ingason.
Ljósmynd/Eygló Gísladóttir