Þann 17. janúar var opnun frönsku kvikmyndahátíðarinnar haldin með pompi og prakt. Í ár á hátíðin 25 ára afmæli og opnunarmyndin, A Little Something Extra eða Un p’tit truc en plus, skorar á áhorfandann að endurhugsa hvað þýðir að vera „öðruvísi“.
Steinunn Ása Þorvaldsdóttir, sjónvarpskona og talsmaður um réttindi fatlaðs fólks, hélt djúpa ræðu um mikilvægi fjölbreytni í kvikmyndum og hvernig opnunarmyndin ýtir undir að áhorfandinn líti öðrum augum á lífið og tilveruna. Tala Steinunnar var í takt við söguþráð kvikmyndarinnar sem m.a. tekst á við málefni fatlaðs fólks út frá einstöku sjónarhorni.
Opnunarmyndin hefur verið gríðarlega vinsæl í heimalandinu, Frakklandi. Hún var á toppnum í átta vikur samfleytt með yfir 7,3 milljónir áhorfenda.
Fjölmargir voru staddir við opnunina sem haldin var í Bíó Paradís en þess má geta að franska kvikmyndahátíðin er sú elsta sem haldin er á Íslandi. Frönsk kvikmyndahátíð fer fram dagana 17.-26. janúar í Bíó Paradís í samstarfi við Franska sendiráðið á Íslandi og Alliance Francaise.
Hrönn Sveinsdóttir, Helga Bryndís Jónsdóttir og Niels Thibaud Girerd.
Ljósmynd/Patrik Ontkovic
Grace Achieng, Steinunn Ása Þorvaldsdóttir og Aleksandra Nycz.
Ljósmynd/Patrik Ontkovic
Guillaume Bazard, sendiherra Frakklands, hélt tölu.
Ljósmynd/Patrik Ontkovic
Helgi Már Björgvinsson, yfirmaður alþjóðasamskipta hjá Icelandair og Patrick Le Menes sendiráðunautur.
Ljósmynd/Patrik Ontkovic
Hrönn Sveinsdóttir, framkvæmdastjóri Bíó Paradís í líflegu spjalli við gesti.
Ljósmynd/Patrik Ontkovic
Kim Minkyiung, Grace Achieng, Aleksandra Nycz, Milan Chang og Alexandre Labruffe.
Ljósmynd/Patrik Ontkovic
Ásthildur Kjartansdóttir, Ari Alexander og Ester Bíbí Ásgeirsdóttir.
Ljósmynd/Patrik Ontkovic
Ása Steinunn Þorvaldsdóttir, Gillaume Bazard og Hrönn Sveinsdóttir.
Ljósmynd/Patrik Ontkovic
Franska sendiráðið bauð upp á léttar veitingar í lok sýningar.
Ljósmynd/Patrik Ontkovic
Mikið var rætt að lokinni sýningu.
Ljósmynd/Patrik Ontkovic
Fullt hús og góð stemning á opnun hátíðarinnar.
Ljósmynd/Patrik Ontkovic
Sendiherra Frakklands, Guillaume Bazard, ásamt vinkonu sinni og Guðlaugu Matthildi Jakobsdóttur (t.h.), fyrrum forseta Alliance Francaise.
Ljósmynd/Patrik Ontkovic
Gunnar Snorri Gunnarsson, fyrrum sendiherra og forseti Alliance Francaise, hélt einnig ræðu.
Ljósmynd/Patrik Ontkovic
Gunnur Martinsdóttir Schluter kvikmyndaleikstjóri ásamt vini sínum.
Ljósmynd/Patrik Ontkovic
Steinunn Ása náði salnum með magnaðri ræðu.
Ljósmynd/Patrik Ontkovic
Anna Róshildur Böving, Renaud Duville og Alexandre Labruffe.
Ljósmynd/Patrik Ontkovic
Salurinn var fullur af fólki.
Ljósmynd/Patrik Ontkovic