Kæri Vatnsberi, í júní ættir þú að gefa þér góðan tíma í að einbeita þér að sambandi við náin vin eða maka. Þú gætir jafnvel þurft að ræða við hann um fjármál því hlutirnir hafa verið flóknir. En mánuðurinn mun byrja vel, þú munt líklega fagna stórum áfanga með vini. Njóttu þess í botn, þetta verður þér minnisstætt því þú ert umvafin góðu fólki.
Rómantíkin mun gera vart við sig í kringum 16. júní. Plánetan þín, Úranus, mun standa vörð um þig sem eru góðar fréttir. Ef þú ert í sambandi þá munt þú njóta þín í botn, maki þinn mun veita þér mikla athygli.
Ferðalög gætu verið á næsta leyti, þú ættir að íhuga að skoða nýja staði. Það væri hentugt að fara í kringum 9. eða 10. Júní. 22. júní er annars frábær tími fyrir ferðalag, þú verður opin fyrir nýjungum og tilbúin að sjá og gera eitthvað spennandi. Og að lokum verður helgin 27-28. júní líka tilvalin fyrir ævintýri.
Ástin verður við völd í júní. Þetta er svo sannarlega tíminn til að gera eitthvað rómantískt og kynþokkafullt með þeim sem er í uppáhaldi hjá þér.
Frá og með 24. júní mun vinnan þó krefjast mikillar athygli frá þér, ekki örvænta, vinnan mun ekki heltaka þig því félagslífið og rómantíkin mun einnig kalla.
Spá Susan Miller í heild sinni má finna inni á AstrologyZone.com.