Pláneturnar eru með Krabbanum í liði í júní

Susan Miller segir 5. júní verða áhugaverðan hjá Krabbanum.
Susan Miller segir 5. júní verða áhugaverðan hjá Krabbanum.

Kæri Krabbi, núna er rétti tíminn til að klára þau verkefni sem þú hefur verið að vinna að. Óvænt tilboð gætu gert vart við sig í kjölfar þess sem þú skilar inn verkefnum, svo lengi sem þú hefur vandað til verka. 

Ef þú hefur átt við einhver heilsufarsvandamál að glíma þá er þetta rétti tíminn til að takast á við þau. Fáðu annað álit hjá nýjum lækni og komdu heilsunni í lag í eitt skipti fyrir öll.

Núna er rætti tíminn til að stækka fjölskylduna ef það er eitthvað sem þú hefur áhuga á að gera, íhugaðu t.d. að fá þér gæludýr en ekki taka endanlega ákvörðun fyrir 11. júní. Skoðaðu málið vel og vandlega og gerðu heimavinnuna þína ef þig langar að ættleiða kisu eða hund.

Merktu svo við 5. júní á dagatalinu. Pláneturnar verða með þér í liði og þú munt finna nýjar leiðir til að búa þér til aukapeninga.

Taktu þér góðan tíma til að slaka á eftir 16. júní, vika ætti að duga. Þú þarft smá næði og tíma til að íhuga. Reyndu að komast yfir slæman ávana og vertu óhrædd við að leita þér hjálpar.

Í kringum 22. júní er tilvalið að gera breytingar á híbýli þínu eða íhuga flutningar ef það er eitthvað sem hefur verið á döfinni. Tækifærin gætu komið óvænt og þá er um að gera að grípa gæsina.

Ferilinn mun komast á gott flug í lok mánaðar. Hafðu augu og eyru opin 29. júní. Þú gætir fengið stöðu- eða launahækkunina sem þú varst búin að biðja um.

Spá Susan Miller í heild sinni má finna inni á AstrologyZone.com.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

endurskoðandi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál

lýtalæknir svarar spurningum lesenda