Kæri Fiskur
Júlí byrjar vel hjá þér og það verður nóg að gera í félagslífinu. Þér verður boðið í skemmtilegar veislur þar sem þú nærð að kynnast nýju fólki, mögulega valdamiklu fólki. Nýttu þennan tíma í að njóta tónlistar eða myndlistar og hlúðu að tengslanetinu þínu.
Ekki nota tímabilið frá 25. júlí til 6. september í að gera stórtækar breytingar á útlitinu. Bíddu þar til í september eða jafnvel október, því þá verður útkoman glæsileg. Sömuleiðis er þetta ekki rétti tíminn til að taka stórar ákvarðanir eða bera upp bónorð.
Þetta verður rómantískur mánuður og Fiskarnir munu laða allt og alla að sér. Einhleypir Fiskar munu skína skært og kynþokkinn nær hámarki. Fiskar í sambandi munu fá sérstaka athygli frá makanum. Ef þig dreymir um barn þá gætu hlutirnir gerst í þessum mánuði. 15. júlí verður þá sérstaklega rómantískur, þá væri tilvalið að fara í smá ferðalag og bregða út af vananum.
Í kringum miðjan mánuð gætir þú fengið smá áfall, annað hvort yfir útgjöldunum sem eru að fara í félagslífið eða skoðunum náins vinar. En þú munt jafna þig fljótt.
Eins og áður sagði þá verður brjálað að gera í félagslífinu þennan mánuðinn og þú munt fá mikla þörf til að slaka á í lok mánaðar. 31. júlí ættir þú að nýta í hvíld því ró og næði mun gera þér gott.
Spá Susan Miller má lesa í heild sinni á Astrology Zone.