Kæri Sporðdreki
Það gengur allt vel í vinnunni. Júlí verður ákveðinn uppskerutími fyrir þig þannig að núna færðu þá viðurkenningu sem þú átt skilið fyrir vel unnin störf. Í byrjun mánaðar gætir þú svo átt von á stöðu- eða launahækkun af einhverju tagi. Pláneturnar eru með þér í liði og heppnin verður með þér.
Þú ættir að skella þér í ferðalag einhvern tímann í kringum fyrstu tvær vikunum í júlí. Pakkaðu í ferðatökuna og skelltu þér af stað, það er óþarfi að fara langt. Skemmtilegheit munu ráða ríkjum. Hins vegar, ef þú hyggst ferðast í kringum 15. júlí þá getur þú átt von á því að eitthvað fari úrskeiðis.
Þegar kemur að ástarlífinu þá er 25. júlí til 6. september ekki rétti tíminn til taka næsta skref. Varastu að fara á fyrsta stefnumót á þessu tímabili eða, fyrir þá sem eru í sambandi, trúlofast. Sömu sögu má segja um útlitið, ekki gera stórtækar breytingar á þessum tíma. Bíddu að minnsta kosti þar til eftir 6. september en vænlegast til vinnings væri að bíða til 9. október.
Heimilislífið og fjölskyldan mun svo eiga hug þinn allan í lok mánaðar. Ef þú stendur í endurbótum heima við þá skaltu reyna að ljúka þeim fyrir mánaðarmót.
Spá Susan Miller má lesa í heild sinni á Astrology Zone.