Vinnustaðarómantík er eitthvað sem margir kannast við og líklega ekki að ástæðulausu en 84 prósent aðspurðra kvenna í könnun sem Women’s Health greinir frá hafa fantaserað um kynlíf með vinnufélaga sínum.
Rúm 73 prósent kvennanna segjast hafa hugsað sér að gera sér upp auka kvöldvinnu til þess geta eytt tíma með yfirmanni sínum. En þrátt fyrir þetta eru alls ekki allir sem láta drauminn verða að veruleika og það er ástæða fyrir því.
Algengasta ástæðan fyrir því að ekkert varð úr draumnum var sú að fólk var í sambandi, næstalgengasta ástæðan var hvaða afleiðingar það myndi hafa á vinnuna og þriðja ástæðan var sú að þær myndu skammast sín fyrir það.