Hjón sem fundu ástina eftir skilnað

Meghan fann Harry eftir skilnað en hún er ekki eina …
Meghan fann Harry eftir skilnað en hún er ekki eina stjarnan sem hefur fundið hina einu sönnu ást eftir skilnað. Samsett mynd

Skilnaður þarf ekki að vera dauðadómur enda margir sem hitta sálufélaga sinn eftir skilnað og erfið sambandsslit. Meghan hertogaynja hitti draumaprinsinn sinn, Harry, eftir að hún skildi við fyrrverandi eiginmann sinn og það sama má segja um fleiri stjörnur eins og kemur fram á vef Prevention.

Nicole Kidman

Leikkonan var gift leikaranum Tom Cruise í rúm tíu ár og ættleiddi með honum tvö börn. Þau skildu árið 2001 og árið 2006 gekk hún í hjónaband í annað sinn þegar hún og tónlistarmaðurinn Keith Urban giftu sig. Þau eiga saman tvær dætur og eiga erfitt með að fela ást sína á rauða dreglinum. 

Tom Cruise og Nicole Kidman giftu sig árið 1990 og …
Tom Cruise og Nicole Kidman giftu sig árið 1990 og skildu árið 2001. mbl.is/AFP
Nicole Kidman og Keith Urban.
Nicole Kidman og Keith Urban. mbl.is/AFP

Reese Witherspoon

Leikkonan gekk í hjónaband með leikaranum Ryan Phillippe árið 1999 og eignaðist með honum tvö börn. Hjónabandinu lauk árið 2006 en nokkrum árum seinna fann hún ástina í lífi sínu, Jim Toth. Witherspoon og Toth giftu sig árið 2010 og eignuðust saman barn árið 2012. 

Reese Witherspoon var eitt sinn gift leikaranum Ryan Phillipe.
Reese Witherspoon var eitt sinn gift leikaranum Ryan Phillipe. mbl.is/ REUTERS
View this post on Instagram

Happy Birthday to my sweet hubby!!! 🎂Here’s to another fantastic trip around the sun with you! 💫❤️ Love you, JT!

A post shared by Reese Witherspoon (@reesewitherspoon) on Jul 27, 2019 at 10:22am PDT

Chris Pratt

Leikarinn og fyrrverandi eiginkona hans, Anna Faris, tilkynntu skilnað sinn árið 2017. Pratt var ekki lengi að finna ástina og gekk í hjónaband með Katherine Schwarzenegger, dóttur Arnolds Schwarzeneggers, fyrir stuttu. 

Katherine Schwarzenegger og Chris Pratt.
Katherine Schwarzenegger og Chris Pratt. mbl.is/AFP
Anna Faris og Chris Pratt.
Anna Faris og Chris Pratt. mbl.is/AFP

Will Smith

Leikarinn var giftur Sheree Zampino í þrjú ár á tíunda áratugnum og á með henni son. Árið 1997 gekk hann í hjónaband með Jödu Pinkett Smith og eru þau enn saman. 

Jada Pinkett Smith og Will Smith.
Jada Pinkett Smith og Will Smith. mbl.is/AFP

Kim Kardashian

Raunveruleikastjarnan var gift körfuboltamanninn Kris Humphries í 72 daga. Hún fann loksins ástina þegar hún byrjaði með Kanye West. Hjónin eiga nú fjögur börn og hafa verið gift í fimm ár. 

Kim Kardashian og Kris Humphries
Kim Kardashian og Kris Humphries mbl.is/Cover Media
Kim Kardashian og Kanye West.
Kim Kardashian og Kanye West. mbl.is/AFP

George Clooney

Margir héldu að Clooney myndi aldrei festa ráð sitt eftir að hann skildi við Taliu Balsam árið 1993. Clooney fann loksins réttu konuna þegar hann kynntist Amal Clooney. Þau giftu sig fyrir fimm árum og eignuðust tvíbura árið 2017.

Amal og George Clooney.
Amal og George Clooney. mbl.is/AFP

Miranda Kerr

Fyrirsætan og leikarinn Orlando Bloom skildu árið 2013 eftir þriggja ára hjónaband og eitt barn. Nú er fyrirsætan gift Snapchat-stofnandanum Evan Spigel og eiga hjónin von á sínu öðru barni saman.

Miranda Kerr og Orlando Bloom.
Miranda Kerr og Orlando Bloom. mbl.is/AFP
Evan Spiegel og Miranda Kerr.
Evan Spiegel og Miranda Kerr. mbl.is/AFP

Ashton Kutcher

Leikarinn gekk í hjónaband með leikkonunni Demi Moore árið 2005 þrátt fyrir 16 ára aldursmun. Hjónabandið entist þó aðeins í sex ár. Nokkrum árum seinna gekk Kutcher í hjónaband með gömlum samstarfsfélaga, Milu Kunis. Saman eiga þau tvö börn. 

Ashton Kutcher og Demi Moore.
Ashton Kutcher og Demi Moore. mbl.is/Cover Media
Ashton Kutcher og Mila Kunis.
Ashton Kutcher og Mila Kunis. mbl.is/AFP

Ryan Reynolds

Leikarinn giftist Scarlett Johansson árið 2008 en þau tilkynntu skilnað tveimur árum seinna. Í dag er hann giftur Gossip Girl-stjörnunni Blake Lively og eiga þau von á þriðja barninu. 

Blake Lively og Ryan Reynolds.
Blake Lively og Ryan Reynolds. mbl.is/AFP
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál