Sævar Þór Jónsson lögmaður/MBA svarar spurningum lesenda Smartlands. Hér fær hann spurningu frá manni varðandi setu í óskiptu búi.
Sæll.
Ef fullorðinn maður situr í óskiptu búi og fyrirtæki og bætir við sig eignum eftir andlát maka má hann arfleiða allt á einn afkomanda í lifanda lífi án þess að gera upp hið óskipta bú?
Kveðja, L
Sæll.
Eignir og sjálfsaflafé sem hinn langlífari maki aflar í óskiptu búi rennur að meginreglu í búið nema lög kveði á um að það eigi að falla til séreignar hans. Yrði því að ætla að eignirnar sem fullorðni maðurinn bætir við sig í óskipta búinu verði eignir búsins.
Vert er að taka fram að séreignir renna ekki í óskipt bú og verðmæti, sem koma í stað séreignar, eða arður af séreignum gera það því ekki heldur nema um annað sé mælt í kaupmála eða fyrirmælum gefanda eða arfleifanda.
Aftur á móti eru gjafagerningar í lifanda lífi heimilaðir svo lengi sem þeir eru ekki úr hófi fram en meginreglan um ráðstöfunarheimild maka sem nýtur leyfis til setu í óskiptu búi er sú að hann hefur fulla heimild til að ráðstafa eignum búsins til annarra aðila með hverjum þeim hætti sem hann kýs, hvort heldur sem er með sölu eða gjöfum.
Kær kveðja,
Sævar Þór Jónsson lögmaður/MBA
Liggur þér eitthvað á hjarta? Þú getur sent Sævari spurningu HÉR.