Það er fátt betra en að elska af öllu hjarta ekki síst í svartasta skammdeginu. Berglind Guðmundsdóttir hjúkrunarfræðingur og matarbloggari á Gulur, rauður, grænn og salt er komin á fast. Sá heppni heitir Heiðar Gottskálksson og rekur fyrirtækið HG dráttarbílar.
Berglind hefur verið áberandi í íslensku samfélagi þegar hún ákvað að gerast matarbloggari fyrir meira en áratug. Hún hefur því haft töluverð áhrif á mataræði landsmanna enda vefurinn hennar vinsæll. Hún stýrir líka reglulegum Dagmálsþáttunum sem sýndir eru á mbl.is.
Parið hefur verið að hittast í nokkra mánuði en um síðustu helgi fóru þau til Berlínar þar sem þau nutu lífsins saman.
Smartland óskar þeim til hamingju með hvort annað!