Stærðin skiptir ekki máli segja sumir. Fólk er þó oft við hugann við stærð lima og nú segja vísindamenn við Standford Medical School að typpi hafi lengst á síðustu þremur áratugum. Í ljós kom að typpi í fullri reisn hefur lengst um 24 prósent á 29 ára tímabili.
Við rannsóknina voru niðurstöður úr 75 öðrum rannsóknum notaðar og komu þar yfir 55 þúsund einstaklingar við sögu.
„Það sem kom í ljós var töluvert ólíkt annarri þróun þegar kemur að frjósemi karlmanna og heilsu. Limur í reisn er að lengjast, frá því að vera að meðaltali 12,2 sentímetrar yfir í að vera 15,2 sentímetrar,“ sagði prófessor í þvagfæralækningum við Stanford-háskóla að því fram kemur á vef Cosmopolitan.
Prófessorinn vildi meina að þessar niðurstöður þyrftu að skoða betur, staðfesta og finna ástæður fyrir þeim.