Ennþá skotinn í eiginkonunni eftir 27 ára hjónaband

Hugh Jackman ásamt eiginkonu sinni til 27 ára, Deboru-Lee Furness.
Hugh Jackman ásamt eiginkonu sinni til 27 ára, Deboru-Lee Furness. AFP

Hollywood–leikarinn Hugh Jackman birti færslu á samfélagsmiðlinum Instagram á þriðjudag þar sem hann fer fögrum orðum um eiginkonu sína, Deboru–Lee Furness í tilefni af 27 ára brúðkaupsafmæli parsins. 

„Ég elska þig, Deb. Í dag eigum við 27 ára brúðkaupsafmæli. 27 ÁRA!! Ég elska þig svo mikið. Saman höfum við búið til fallega fjölskyldu. Og lífið. Hláturinn þinn, andi, gjafmildi, húmor, ósvífni, hugrekki og tryggð er mér hin ótrúlegasta gjöf. Ég elska þig af öllu mínu hjarta,“ skrifaði leikarinn við færsluna sem sýnir brosmilda mynd af parinu. 

Parið kynntist árið 1995 á tökustað áströlsku þáttaraðinnar, Corelli og giftu sig tæpu ári síðar. Þau eiga saman tvö börn, Oscar og Avu, sem þau ættleiddu. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

endurskoðandi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál

lýtalæknir svarar spurningum lesenda