Sumarástin hefur gripið leikarana Völu Kristínu Eiríksdóttur og Hilmi Snæ Guðnason. Samkvæmt heimildum Smartlands nýtur parið lífsins saman.
Leikararnir hafa báðir verið afkastamiklir á íslensku leiksviði, en Hilmir og Vala Kristín unnu náið saman í sýningunni Oleanna sem sýnd var í Borgarleikhúsinu á síðasta leikári.
Hilmir Snær var áður giftur Bryndísi Jónsdóttur, en þau skildu árið 2022 eftir 12 ára hjónaband. Fyrrverandi hjónin eiga eina dóttur. Vala Kristín var í sambandi með tónlistarmanninum Birki Blæ Ingólfssyni, en þau bjuggu saman á Leifsgötu og áttu hundinn Oliver.
Nokkur aldursmunur er á parinu, en Hilmir er fæddur árið 1969 og Vala Kristín árið 1991.
Vísir greindi fyrst frá.