Kristín Pétursdóttir, leikkona og áhrifavaldur, hefur fundið ástina. Sá heppni heitir Þorvar Bjarmi Harðarson og er handboltadómari. Unga parið hefur notið sólarblíðunnar sem verið hefur á landinu undanfarna daga og skáluðu þau fyrir ástinni með ísköldum bjór.
Parið birti myndir hvort af öðru á Instagram um helgina, en þau nýttu veðurblíðuna og grilluðu í góðra vina hópa.
Kristín hefur verið mjög áberandi síðustu ár, en hún lék meðal annars í leiksýningunni Mæður sem sýnd var í Borgarleikhúsinu. Hún nýtur einnig mikilla vinsælda á samfélagsmiðlum, en hún er með yfir 21 þúsund fylgjendur á Instagram. Kristín á einn son úr fyrra sambandi.
Smartland óskar parinu til hamingju með ástina.
Vísir greindi fyrst frá.