Það að stunda kynlíf hefur marga kosti, líkamlega og andlega. Ekki kenna makaleysi um skort á kynlífi, það ver vel hægt að stunda kynlíf án maka. Kynlífssérfræðingurinn Tracey Cox fór yfir kosti þess að stunda ekki kynlíf í pistli á vef Daily Mail.
Þegar fólk fær fullnægingu virkjar það grindarbotninn. Sterkur grindarbotn gerir það að verkum fullnægingar verða betri og tíðari. Blaðran virkar einnig betur með sterkari grindarbotni.
Kynlíf er sagt geta stuðlað að betri hjartaheilsu. Rannsókn sýndi að fólk sem stundaði kynlíf reglulega væri með lægri blóðþrýsting en fólk sem stundaði ekki kynlíf reglulega.
Þegar fólk er stressað minnkar löngunin til þess að stunda kynlíf. Það hefur einnig jákvæð áhrif á stress að stunda kynlíf.
Gott kynlíf getur komið í stað svefnpilla. Með fullnægingu fær fólk ákveðin hormón sem bæta svefninn. Fólk sefur betur og á auðveldara með að sofna.
Ertu að fá flensu of oft? Kannski er lausnin að stunda kynlíf oftar. Það hefur sýnt sig að fólk sem stundar kynlíf reglulega er með sterkt ónæmiskerfi.
Þunglyndi, einmanaleiki og lélegt sjálfsálit getur verið fylgifiskur þess að stunda ekki kynlíf, sérstaklega þegar fólk velur það ekki sjálft. Sektarkennd getur líka verið tilfinning sem fólk finnur fyrir ef það langar ekki til þess að stunda kynlíf.
Ef fólk hættir að stunda kynlíf í ákveðinn tíma gleymir það hversu gott það er. Því oftar sem fólk stundar kynlíf því oftar kemur löngunin.