Theodor Francis Birgisson klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni svarar spurningum lesenda Smartlands. Hér fær hann spurningu frá mömmu sem er að fara að útskrifa dóttur sína og hefur áhyggjur af útskriftarveislunni.
Sæll Theodor.
Ég er að fara að útskrifa dóttur mína í vor, hún á pabba og stjúpmóður og svo er ég gift og hún á því stjúpföður líka. Við foreldrarnir vorum aldrei saman. Samskiptin voru ekkert alltaf góð á milli okkar foreldranna þegar hún var yngri en sem betur fer hefur það lagast, en samskiptin snúast alfarið um dótturina, eru í lágmarki en af virðingu.
Núna eru þau að fara koma í útskriftina og fjölskyldur þeirra, og þar á meðal fjölskylda stjúpmóðurinnar og það er mér svo mikilvægt að þeim finnist þau öll velkomin og við séum ánægð að þau komi en ég vill heldur ekki vera „of mikið“ eða að þeim finnist þau þvinguð í þessum aðstæðum.
Hvernig get ég látið þeim líða vel, liðið vel sjálf og umfram allt að dóttir mín upplifi dásamlegan dag með öllu sínu nánasta fólki?
Sest maður niður og spjallar eða sleppi ég alveg að tala við þau?
Með von um svar,
V
Sæl og blessuð og takk fyrir þessa spurningu.
Útskriftardagurinn er einn af stóru dögunum í lífi fólks. Væntingastjórnun er nauðsynleg í svona stórum málum þannig að mikilvægast er að byrja á að hlusta eftir því hvaða væntingar dóttir þín hefur til dagsins. Þegar það liggur fyrir hvað hún óskar sér væri síðan mikilvægt að allir foreldrar sem koma að dóttur þinni hittist fyrir útskriftina og ráði ráðum sínum. Á þeim fundi er mjög gott að fara yfir væntingar dótturinnar og hvernig allir foreldrar hennar geta á sem bestan hátt mætt þeim væntingum.
Að sjálfsögðu er líka mikilvægt að væntingar allra foreldra heyrist þannig að það séu ekki neinir eftirmálar eftir veisluna um að einhverjum hafi fundist eitthvað fara ekki nógu vel. Ef ykkur finnst vandræðalegt að hittast á slíkum fundi fyrir veisluna þá verður ekkert minna vandræðalegt að hittast í veislunni sjálfri. Ef ekki liggur fyrir hvaða væntingar allir bera til dagsins er mjög auðvelt að verða kvíðinn og stressaður fyrir deginum. Mál sem þessi leysast oftast um leið og fólk fer að tala saman. Með von um að þetta hjálpi ykkur.
K.kv,
Theodor
Liggur þér eitthvað á hjarta? Þú getur sent Theodor spurningu HÉR.