Dóttirin rekin úr skóla í 8. bekk

Íslensk móðir ræður ekkert við barnið sitt og segir líf …
Íslensk móðir ræður ekkert við barnið sitt og segir líf fjölskyldunnar í rúst. Ljósmynd/Sterk saman

Íslensk móðir, sem hefur barist við kerfið í mörg ár, segir sögu sína og dóttur sinnar í nýjasta þætti hlaðvarps Tinnu Barkardóttur, Sterk saman. Konan kemur ekki fram undir nafni til að vernda hagsmuni dóttur sína. Hér er hún kölluð Erna og er hún alveg búin á því - því engin úrræði virðast vera til fyrir dóttur hennar. 

Erna eignaðist dóttur sína með erlendum manni sem hafði búið lengi á Íslandi og var með ótímabundið landvistarleyfi. Erna og barnsfaðir hennar bjuggu aldrei saman og segir hún að samskipti þeirra á milli hafi verið góð, bæði á meðgöngu og eftir að dóttirin fæddist. 

„Þegar hún var tveggja ára framdi hann alvarlegan glæp og fékk langan dóm. Ég passaði samt alltaf að hún vissi hver hann væri með myndum og öðru,“ segir Erna sem segir að það hafi verið erfitt að útskýra fyrir dóttur sinni að faðir hennar væri í fangelsi. Hún segist hafa leitað sér faglegrar hjálpar til þess að gera allt rétt varðandi upplýsingagjöf til dótturinnar. Dóttir Ernu var fjörug og þegar hún var þriggja ára vildi leikskólinn senda barnið í greiningarferli. Erna tók það hinsvegar ekki í mál en segist dauðsjá eftir því í dag. 

Dóttirin rekin úr skóla 

Vandamál dótturinnar byrjuðu fyrir alvöru þegar hún var sjö ára gömul en þá var í raun strax komið í ljós að hefðbundið skólakerfi hentaði henni ekki.

„Það var komið í ljós að heimavinna gekk einfaldlega ekki upp, það fór allt á hliðina í marga klukkutíma. Hún átti líka mjög erfitt félagslega en á sama tíma mikil félagsvera,“ segir Erna. 

Dóttirin var senda í fleiri skóla og það var ekki fyrr en í 8. bekk að henni var sagt að dóttir hennar væri óhæf um að vera í skóla. Á þeim tíma var Erna búin að tilkynna sig til barnaverndar og fá bæði skólann og lækni dóttur sinnar til að gera slíkt hið sama, hún fann að hún væri að missa tökin.

„Barnavernd sótti um hjá BUGL og þurfti dóttir mín aðstoð frá bráðateyminu vegna sjálfsvígstilrauna en komst samt sem áður ekki inn á BUGL,“ segir Erna. 

Fundu úrræði

Barnavernd bauð upp á úrræði fyrir stúlkuna. Þar voru fimm unglingar og tveir starfsmenn, lágmarks reglur og hún átti að sýna að hún gæti fylgt reglunum.

„Ég sagði mína skoðun á þessu en ekkert annað var í boði. Hún braut reglur frá fyrsta degi,“ segir Erna. Í þessu úrræði mátti ekki stoppa skjólstæðinga ef þeir ætluðu út, ekki taka vímuefnapróf á þeim þótt neysla á staðnum væri bönnuð. 

„Hún var 14 ára. Eftir einn og hálfan mánuð fékk ég skýrslu um stöðuna. Það voru 29 tilkynningar til bakvaktar barnaverndar og 13 leitarbeiðnir til lögreglunnar. Ég var líka búin að leita að henni á þessum tíma. Hún fór líka í mikla neyslu á þessum tíma, eins og ég var búin að óttast.“

Inn í allt þetta koma áföll tengd föður stúlkunnar en þegar hún var tíu ára átti að senda hann úr landi og voru þau feðgin búin að kveðjast eftir að hafa tekið upp þráðinn þegar hann losnaði. Hann endaði aftur í fangelsi, í biðstöðu, í tvö ár þar sem hún heimsótti hann reglulega.

Búin að missa vinnuna tvisvar

Í dag hefur hún ekki enn komist að hjá BUGL en er í búsetuúrræði þar sem vaktaskipti eru og aldrei færri en tveir, stundum þrír. 

Þegar hún bjó á heimili móður sinnar og stjúpföður, ásamt yngri bróður sínum, þurfti að skipuleggja heimilið út í smáatriði.

„Ég svaf í sófanum í stofunni, maðurinn minn og sonur okkar inni í herbergi með læst. Læst inn í forstofu og öll lyf læst inni, eins hnífar. Maður vissi aldrei hvenær næsta kast yrði. Sonur okkar er með áfallastreitu og mikinn aðskilnaðarkvíða. Ég er búin bara og hef misst vinnuna tvisvar út af því að ég hef ekki geta sinnt neinu. Ofan á allt er bara mikið áfall að geta ekki verið með barnið mitt heima og hugsað um hana,“ segir hún. 

Hægt er að hlusta á þáttinn á hlaðvarpsvef mbl.is. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál