Leikarinn Hallgrímur Ólafsson og eiginkona hans, Matthildur Magnúsdóttir, fögnuðu sex ára brúðkaupsafmæli sínu, svokölluðu sykurbrúðkaupi, í gærdag. Hjónin fögnuðu deginum ásamt sonum sínum, Elmari og Magnúsi, á Hamborgarabúllu Tómasar.
Hallgrímur, einn ástsælasti leikari þjóðarinnar, birti skemmtilega mynd á Instagram-reikningi sínum sem sýnir fjölskylduna í góðu yfirlæti á hamborgarastaðnum.
„Brúðkaupsafmælið haldið hátíðlegt á búllunni! Basic,“ skrifaði leikarinn við færsluna.
Hallgrímur og Matthildur gengu í heilagt hjónaband þann 30. júní 2018 í Dómkirkjunni.