Gerður Arinbjarnardóttir, eigandi kynlífstækjabúðarinnar Blush, er trúlofuð sínum heittelskaða, Jakob Fannari Hansen.
Gerður birti fallega myndaseríu á Instagram-reikningi sínum nú rétt í þessu og sýnir þar fallegan trúlofunarhring. Jakob Fannar fór á skeljarnar á Ítalíu.
„Munum seint gleyma þessari Ítalíuferð,” skrifar Gerður við færsluna.
Smartland óskar parinu hjartanlega til hamingju!