Anna Lilja og Gestur Breiðfjörð eru nýtt par

Lengi lifi ástin!
Lengi lifi ástin! Samsett mynd

Anna Lilja Johansen og Gestur Breiðfjörð Gestsson viðskiptamaður eru nýtt par.  

Anna Lilja, sem vakti þjóðarathygli þegar hún tók þátt í Ungfrú Ísland árið 2002, skrifaði fallega afmæliskveðju til Gests á Facebook nú á dögunum en hann fagnaði 49 ára afmæli sínu þann 23. júlí síðastliðinn. Anna Lilja birti einnig þó nokkrar myndir af parinu sem virðist ástfangið upp fyrir haus.   

Anna Lilja var áður gift Þorsteini M. Jónssyni, fyrrverandi forstjóra Vífilfells, og átti einnig í sambandi við stjörnulögfræðinginn Vilhjálm H. Vilhjálmsson.  

Gestur stendur í skilnaði en hann var giftur Önnu Maríu Sigurðardóttur jógakennara um árabil. Þau bjuggu í glæsilegu húsi í Votakri í Garðabæ ásamt þremur börnum sínum. Húsið, sem telur 498 fm og er á tveimur hæðum, er nýkomið á sölu og státar meðal annars af bíósal, líkamsrækt og vínherbergi.  

Smart­land ósk­ar par­inu til ham­ingju með ást­ina!

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál