Emmsjé Gauti fagnar ástinni

Hjónin voru stórglæsileg á brúðkaupsdaginn.
Hjónin voru stórglæsileg á brúðkaupsdaginn. Skjáskot/Instagram

Tvö ár eru liðin frá því að tónlistarmaðurinn Gauti Þeyr Másson, best þekktur undir listamannsnafninu Emmsjé Gauti, og eiginkona hans Jovana Schally gengu í það heilaga við fallega athöfn. 

Emmsjé Gauti birti fallega myndaseríu á Instagram-reikningi sínum í morgun í tilefni af brúðkaupsafmæli hjónanna. Annað brúðkaupsafmælið er helgað bómull og kallast því bómullarbrúðkaup. 

„Gift í 2 ár. Good times. Volim te,“ skrifaði tónlistarmaðurinn við færsluna. Volim te þýðir „ég elska þig“ á bæði króatísku og serbnesku.  

Emmsjé Gauti og Jovana voru gefin saman í Fríkirkjunni í Reykjavík þann 6. ágúst 2022. Parið hnaut um hvort annað 2016 og trúlofaði sig þremur árum síðar. Hjónin eiga samtals þrjú börn.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál