Vala Grand og Bryns Gunnarsson hafa skráð sig í samband á Facebook. Parið staðfesti samband sitt í byrjun ágústmánaðar.
Vala er landsmönnum vel kunn enda lengi verið ötul baráttukona fyrir réttindum transfólks á Íslandi. Hún hefur brallað ýmislegt í gegnum tíðina en starfar í dag sem móttökuritari hjá ferðaþjónustufyrirtækinu Reykjavik Excursions. Árið 2010 byrjaði hún með netþátt á mbl.is, titlaður Veröld Völu Grand, þar sem hún gaf landsmönnum innsýn í líf sitt.
Bryns, sem heitir fullu nafni Brynjólfur Gunnarsson, starfar hjá vefstofunni Vettvangi.
Smartland óskar parinu hjartanlega til hamingju með ástina!