Íslensk ofurpör sem láta aldursmun ekki stoppa sig

Samsett mynd

Ein mesta gæfan í lífi fólks er að finna ástina. Finna hinn helminginn af sjálfum sér til þess að lífið tútni út og stækki. Gamli skólinn heldur því fram að hjónabönd séu líklegust til að endast ef það eru þrjú til fjögur ár á milli para og að karlinn sé eldri. Það eru þó nokkrar undantekningar á þessu eins og dæmin sanna.

Smartland tók saman lista yfir heillandi pör hafa náð árangri í sambandi sínu þrátt fyrir töluverðan aldursmun. 

Bubbi og Hrafnhildur!

Tónlistarmaðurinn Bubbi Morthens og eiginkona hans Hrafnhildur Hafsteinsdóttir, viðskiptafræðingur og fyrrverandi fegurðardrottning, hafa verið hamingjusamlega gift frá árinu 2008. Tuttugu ára aldursmunur er á hjónakornunum en Bubbi er fæddur árið 1956 og Hrafnhildur 1976.

Bubbi og Hrafnhildur eru hamingjusamlega gift.
Bubbi og Hrafnhildur eru hamingjusamlega gift. mbl.is

Benedikt og Jónbjörg!

Körfuboltaþjálfarinn Benedikt Rúnar Guðmundsson og Jónbjörg Erla Kristjánsdóttir skráðu sig í samband á Facebook þann 14. ágúst síðastliðinn. Töluverður aldursmunur er á parinu en Benedikt varð 52 ára gamall nú í ágúst og Jónbjörg fagnaði 28 ára afmæli sínu í júní. 

Jónbjörg auglýsti nýverið íbúð sína á Akranesi til leigu og því spurning hvort að parið sé byrjað að búa. Hann er fæddur 1972 og hún er fædd 1996. 

Benedikt og Jónbjörg eru afar glæsilegt par.
Benedikt og Jónbjörg eru afar glæsilegt par. Samsett mynd

Simmi Vill og Hafrún!

At­hafnamaður­inn Sig­mar Vil­hjálms­son, bet­ur þekkt­ur sem Simmi Vill, svipti hulunni af nýju kærustunni fyrr í sumar. Sú heppna heitir Hafrún Hafliðadóttir. Parið er yfir sig ástfangið og lætur ekki 14 ára aldursmun stoppa sig. Hann er fæddur 1977 en hún er fædd 1991. 

Hafrún og Sigmar eyddu ljúfri helgi í München á dögunum. …
Hafrún og Sigmar eyddu ljúfri helgi í München á dögunum. Tilefnið var 33 ára afmæli Hafrúnar. Skjáskot/Instagram

Kári og Eva!

Kári Stef­áns­son, for­stjóri Íslenskr­ar erfðagrein­ing­ar, og Eva Bryn­geirs­dótt­ir, jóga­kenn­ari og einkaþjálf­ari, staðfestu samband sitt á Instagram í byrjun júlí. Eva birti mynd af þeim skötuhjúum á Moca-safninu í Barcelona. Kári er 38 árum eldri en Eva. Hann er fæddur 1949 en hún 1987. 

Kári og Eva virðast afar hamingjusöm.
Kári og Eva virðast afar hamingjusöm. Skjáskot/Instagram

Baltasar og Sunneva!

Leikstjórinn Baltasar Kormákur fann ástina í örmum Sunnevu Ásu Weisshappel, myndal­ist­ar­konu og leik­mynda­hönnuðar, í ársbyrjun 2019. Greint var frá því í lok febrúar að parið ætti von á sínu fyrsta barni saman. 23 ár aðskilja Baltasar og Sunnevu Ásu. Hann er fæddur 1966 en hún 1989. 

Baltasar Kormákur og Sunneva Ása Weisshappel.
Baltasar Kormákur og Sunneva Ása Weisshappel.

Rúnar Freyr og Guðrún Jóna

Rún­ar Freyr Gísla­son, framkvæmdastjóri Söngvakeppninnar, trúlofaðist Guðrúnu Jónu Stefánsdóttur snemma árs 2021. Parið hefur verið saman um árabil og á saman sex börn. Rúnar Freyr er 13 árum eldri en unnusta sín. Hann er fæddur 1973 en hún 1986.

Guðrún Jóna Stefánsdóttir og Rúnar Freyr Gíslason.
Guðrún Jóna Stefánsdóttir og Rúnar Freyr Gíslason. Ljósmynd/Freyja Gylfa

Aníta og Hafþór! 

Leikkonan Aníta Briem og kærasti hennar, Hafþór Waldorff, eiga von á barni saman. Parið, sem byrjaði saman á síðasta ári, festi nýverið kaup á íbúð við Bárugötu í Reykjavík. Aníta er 12 árum eldri en Hafþór. Hún er fædd 1982 en hann er fæddur 1994. 

Aníta Briem á von á barni með kærasta sínum sem …
Aníta Briem á von á barni með kærasta sínum sem er 12 árum yngri en hún. mbl.is/Árni Sæberg

Hilmir Snær og Vala!

Leikaraparið Hilmir Snær Guðnason og Vala Kristín Eiríksdóttir þykir eitt af glæsilegri pörum bæjarins enda bæði að gera það gott í leiklistarheiminum. Hilmir Snær og Vala Kristín unnu náið saman að sýningunni Oleanna í Borgarleikhúsinu á síðasta ári og þar kviknaði neistinn og ástin. 

Nokk­ur ald­urs­mun­ur er á par­inu, eða 22 ár. Hilm­ir er fædd­ur árið 1969 og Vala Krist­ín árið 1991.

Hilmir Snær og Vala Kristín.
Hilmir Snær og Vala Kristín. Samsett mynd

Arnar og Vítalía!

Það vakti athygli þegar einkaþjálfarinn Arnar Grant og Vítalía Lazareva nemi hófu ástarsamband. 24 ára aldursmunur er á parinu. Hann er fæddur 1973 en hún 1997. 

Vítalía Lazareva og Arnar Grant.
Vítalía Lazareva og Arnar Grant. Samsett mynd

Arnar og María!

Arnar B. Gunnlaugsson, fyrrverandi knattspyrnumaður nú og þjálfari Víkings, er í sambandi með Maríu Builien Jónsdóttur, líffræðingi og tölvunarfræðingi. Parið byrjaði að stinga saman nefjum árið 2017 og eiga í dag tvö börn saman. 16 ár aðskilja parið, en Arnar er fæddur árið 1973 og María árið 1989. 

Arnar Gunnlaugsson og María Builien Jónsdóttir.
Arnar Gunnlaugsson og María Builien Jónsdóttir. Skjáskot/Facebook

Erna Mist og Þorleifur!

Erna Mist Yama­gata, lista­kona og pistla­höf­und­ur, og Þor­leif­ur Örn Arn­ars­son leik­stjóri opinberuðu ást sína í byrjun ársins. 20 ára aldursmunur er á parinu, en Þorleifur er fæddur árið 1978 og Erna Mist árið 1998. 

Samsett mynd

Milla og Einar!

Einar Þorsteinsson borgarstjóri Reykjavíkur og Milla Ósk Magnúsdóttir, fyrrverandi aðstoðarmaður Will­ums Þórs Þórs­son­ar heil­brigðisráðherra, eru með glæsilegustu hjónum landsins. 12 ár aðskilja hjónakornin, Einar er fæddur árið 1978 og Milla Ósk árið 1990. 

Milla Ósk Magnúsdóttir og Einar Þorsteinsson.
Milla Ósk Magnúsdóttir og Einar Þorsteinsson.

Gríma og Skúli!

23 ár aðskilja Skúla Mogensen, athafnamann og frumkvöðul, og Grímu Björg Thorarensen innanhússarkitekt. Parið vekur athygli hvar sem það stígur niður fæti enda stórglæsilegt. Skúli er fæddur árið 1968 og Gríma árið 1991. 

Gríma Björg Thorarensen og Skúli Mogensen.
Gríma Björg Thorarensen og Skúli Mogensen. Ljósmynd/Sigurjón Ragnar

Davíð og Isabella!

Davíð Helga­son fjár­fest­ir og fyr­ir­sæt­an Isa­bella Lu War­berg fögnuðu eins árs brúðkaupsafmæli sínu á dögunum. Ástin á milli þeirra kviknaði fyr­ir ör­fá­um árum síðan og eiga þau sam­an tvo unga syni. 22 ára ald­urs­mun­ur er á par­inu. Hann er fædd­ur 1977 en hún 1999.

Davíð Helgason og Isabella Lu Warburg gengu í hjónaband á …
Davíð Helgason og Isabella Lu Warburg gengu í hjónaband á síðasta ári. Ljósmynd/Samsett

Rós og Þorsteinn!

Það eru þrettán ár á milli gullsmiðsins Rós Kristjánsdóttur og athafnamannsins Þorsteins Friðrikssonar. Þau hafa verið saman frá árinu 2018, eiga einn dreng saman og von á öðru barni og eru ástfangin upp fyrir haus. Hann er fæddur árið 1979 en hún er fædd árið 1992.

Þorsteinn og Rós eiga dreng saman og von á öðru …
Þorsteinn og Rós eiga dreng saman og von á öðru barni.
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert
Guðrún Kristjánsdóttir
Guðrún Kristjánsdóttir
Lára Guðrún Sigurðardóttir
Lára Guðrún Sigurðardóttir
Hildur Jakobína Gísladóttir
Hildur Jakobína Gísladóttir
Júlía heilsumarkþjálfi
Júlía heilsumarkþjálfi

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál