Ef vel er að gáð er þó nokkuð um einhleypa, flotta, klára og frábæra karlmenn á Íslandi. Smartland tók saman lista yfir þá eftirsóttustu þessa stundina.
Friðrik Róbertsson, best þekktur undir listamannsnafninu Flóni, er einn af okkar allra hæfileikaríkustu rappörum. Hann er nýlega einhleypur og án efa eftirsóttur.
Sundmaðurinn Anton Sveinn McKee keppti á sínum fjórðu Ólympíuleikum í sumar og vakti mikla athygli, enda afbragðgóður íþróttamaður og ansi huggulegur. Hann stóð sig með mikilli prýði og endaði í 15. sæti.
Anton Sveinn hefur nú lagt sundgleraugun á hilluna og ætlar að einbeita sér að málefnum Miðflokksins, en hann var kosinn formaður Freyfaxa á dögunum.
Leikarinn Blær Hinriksson sló í gegn í hlutverki sínu í íslensku kvikmyndinni Hjartasteini árið 2016. Hann hlaut Edduverðlaun fyrir frammistöðu sína og á svo sannarlega framtíðina fyrir sér á stóra skjánum. Blær hefur einnig tekið að sér módelstörf enda forkunnarfagur ungur maður.
Jóhann er lögreglumaður og því oft kallaður Jói lögga. Hann er hvers manns hugljúfi og afburðagreindur. Hann elskar að ferðast og alltaf til í eitthvað skemmtilegt.
Ásgeir er heimspekingur og lögfræðingur sem kann að halda uppi samræðum um allt milli himins og jarðar.
Jón Heiðar Gunnarsson markaðsstjóri hjá Forlaginu er á lausu. Hann er menntaður í blaðamennsku og heimspeki og starfaði áður hjá Sahara og Morgunblaðinu. Jón Heiðar er eldklár, vænn og vandaður.
Guðlaugur er athafnamaður og kokkur sem er mikill kostur því hann kann að elda góðan mat. Hann hefur mikinn áhuga á ferðalögum, laxveiði og golfi og því mikill ævintýramaður.