Stefan kominn á fast með suðrænum sjarmör

Parið!
Parið! Samsett mynd

Svo virðist sem íslenska OnlyFans-stjarnan Stefan Octavian Gheorghe hafi fundið ástina í örmum suðræns sjarmörs. Sá heppni kallar sig Maspalomas Guy á samfélagsmiðlum.

Stefan deildi sætri myndaseríu af parinu á Instagram-síðu sinni í morgunsárið og af myndum að dæma er parið ástfangið upp fyrir haus og að njóta hverrar mínútu í spænsku borginni Barselóna.

„Þú stalst hjarta mínu,” skrifar hann við færsluna.

Stefan ræddi við blaðamann mbl.is í apríl 2021 og sagði meðal annars frá upplifun hans af klámiðnaðinum.

„Ekki halda þetta sé eitt­hvað slæmt. Mér finnst leiðin­legt að fólk haldi að þetta sé bara dóp og rugl. Við erum með Óskar­sverðlaun í þessu og ég hef farið á rauða dreg­il­inn,“ seg­ir Stef­an.

„Fólk þarf að fara var­lega. Ég mæli ekki endi­lega með að fólk fari út í klám en ef þetta er það sem fólk vill gera þá bara endi­lega. Vertu viss um að þú vit­ir hvað þú ert að gera.“

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

endurskoðandi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál

lýtalæknir svarar spurningum lesenda