Fagnaði tveggja ára frelsi Kleina úr fangelsi með seiðandi ljósmynd

Hafdís Björk og Kristján Einar eru yfir sig ástfangin.
Hafdís Björk og Kristján Einar eru yfir sig ástfangin. Skjáskot/Instagram

Hafdís Björg Kristjánsdóttir einkaþjálfari og Kristján Einar Sigurbjörnsson, jafnan kallaður Kleini, sjá vart sólina hvort fyrir öðru og njóta þess að gefa innsýn í samlíf sitt á samfélagsmiðlum.

Hafdís Björg deildi á dögunum eldheitri mynd af sér og unnustanum í tilefni af því að liðin eru tvö ár frá því að Kristján Einar losnaði úr fangelsi.

„Two years free, and now you’re locked up with me – this sentence is for life,” skrifaði Hafdís Björg við færsluna.

Kristján Einar var dæmdur í tæplega fjögurra ára skilorðsbundið fangelsi fyrir ofbeldisfullt rán og tilraun til ráns í borginni Malaga á Suður-Spáni í mars 2022. Hann sat í gæsluvarðhaldi í átta mánuði.

Hafdís Björg og Kristján Einar byrjuðu saman í lok mars 2023 og hafa verið fyrirferðarmikil á samfélagsmiðlum. Á þessu rúmlega eina og hálfa ári hafa þau trúlofað sig, byrjað að búa saman og tekið samfélagsmiðlapásu svo eitthvað sé nefnt. 

Parið er nú á fullu að undirbúa opnun á sinni eigin húsgagnaverslun. 

View this post on Instagram

A post shared by Hafdís Björg (@hafdisbk)

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert
Loka

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

endurskoðandi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál

lýtalæknir svarar spurningum lesenda