Leikkonan Aldís Amah Hamilton fer ekki leynt með það hver á afmæli í dag. Sambýlismaður hennar, leikarinn Kolbeinn Arnbjörnsson, fagnar 41 árs afmæli sínu í dag og birti leikkonan langa færslu á Instagram-síðu sinni í morgunsárið til heiðurs afmælisbarninu.
Aldís Amah og Kolbeinn kynntust við tökur á spennuþáttunum Svörtum söndum sem sýndir hafa verið á Stöð 2 við miklar vinsældir.
„Jiii hvað haldiði?!
Kolbeinn á afmæli í dag, 22. nóvember.
Ég fæ að fagna afmælinu hans með honum í 4ja sinn og það eru stórkostleg forréttindi! Að venju erum við ekki heima hjá okkur heldur á ferð og flugi. Lognmollur eru ekki góðkunningjar okkar… En hver einasti hóll og hver einasta hæð er örlítið auðveldara að klífa með honum.
Ég óska öllum eins Kolla í lífið. Það er eins og að fá örlítið helíum á morgnana. Skrefin eru bara aðeins léttari.
Myndasyrpa yfir árið - frá seinustu viku þegar við fórum örugglega með lungnabólgu á djammið og aftur til fyrstu myndarinnar eftir seinasta afmæli.
Áður en ég fæ spurningar þá já, þetta er Kolbeinn að pissa upp í vindinn á hálendinu. Því þannig maður er hann. Maður sem pissar harðneskjulega framan í vindinn - við gætum fleiri tekið hann til fyrirmyndar.
Til hamingju með daginn ástin mín eina og takk fyrir að nenna þessum litla durgi,“ skrifaði Aldís Amah við skemmtilega myndaseríu af parinu.