Ellen Margrét og Arnmundur létu pússa sig saman

Glæsileg brúðhjón.
Glæsileg brúðhjón. Skjáskot/Instagram

Listaparið Arnmundur Ernst Backman og Ellen Margrét Bæhrenz lét pússa sig saman við fallega athöfn um helgina.

Ellen Margrét og Arnmundur deildu gleðifréttunum í sameiginlegri færslu á Instagram og birtu fallegar myndir frá brúðkaupsdeginum.

„Nýgift,“ skrifuðu brúðhjónin við myndirnar.

Ellen Margrét og Arnmundur hafa verið saman í dágóðan tíma og eiga saman tvo syni, hinn sjö ára gamla Hrafn Jóhann og Halldór Hólmar sem fagnar tveggja ára afmæli sínu í byrjun næsta árs.

Smartland óskar parinu hjartanlega til hamingju!

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

endurskoðandi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál

lýtalæknir svarar spurningum lesenda