Ástin blómstrar hjá Freyju og David

Freyja Haraldsdóttir og David Agyenim Boateng
Freyja Haraldsdóttir og David Agyenim Boateng Skjáskot/Instagram

Ástin virðist blómstra hjá Freyju Haraldsdóttur, doktorsnema við menntavísindasvið Háskóla Íslands og baráttukonu fyrir réttindum fatlaðra, og kærasta hennar, David Agyenim Boateng, nemanda við Háskóla Íslands.

Parið fagnaði eins árs sambandsafmæli sínu í byrjun október í fyrra og deildi fallegri mynd af sér á Instagram í tilefni dagsins.

Í færslunni greindi Freyja frá því að hún og David hafi byrjað að spjalla saman á stefnumótaforriti eftir að þau „swipe-uðu“ til hægri og að þau væru byrjuð að búa saman.

Parið op­in­beraði sam­band sitt í febrúar síðastliðnum þegar Freyja birti mynd af David á Facebook-síðu sinni í tilefni af bóndadeginum. Fimm ára aldursmunur er á parinu, en Freyja er fædd árið 1986 á meðan David er fæddur árið 1991.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

endurskoðandi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál

lýtalæknir svarar spurningum lesenda