Viktor Gísli Hallgrímsson, landsliðsmarkvörður í handbolta, fer ekki leynt með ást sína á kærustu sinni, Jennýju Fjólu Ólafsdóttur, í hjartnæmri afmæliskveðju sem hann birti á Instagram-síðu sinni í gær.
„Uppáhalds manneskjan mín 25 í dag, ég elska þig,“ skrifaði Viktor Gísli við fallega myndaseríu af parinu.
Jenný Fjóla er helsta klappstýra Viktors Gísla og hvatti hann til dáða úr áhorfendastúkunni á heimsmeistaramótinu í handknattleik karla í Zagreb.
Hún ræddi við blaðamann mbl.is fyrir leik Íslands og Króatíu síðastliðinn föstudag og fór fögrum orðum um sinn heittelskaða.
„Það er geðveikt að fylgjast með honum. Ég er svo stolt af honum. Það er yndislegt hvað hann er búinn að vera góður og það er geðveikt að heyra nafnið hans þegar hann ver vel. Það er miklu skemmtilegra að vera í stúkunni og allt öðruvísi.
Það er ekki eins gaman að vera heima í sófanum og sérstaklega þegar stemningin hjá Íslendingunum er svona rosalega góð,“ sagði Jenný Fjóla.
Viktor Gísli og Jenný Fjóla hafa verið saman um nokkurra ára skeið, en þau kynntust á táningsaldri þegar þau stunduðu nám við Verzlunarskóla Íslands.