„Yfirmaðurinn lætur hræðilega við mig“

20 ára íslenskur maður leitar ráða vegna yfirmanns síns.
20 ára íslenskur maður leitar ráða vegna yfirmanns síns. Getty Images/Unsplash

Tinna Rut Torfadóttir sálfræðingur á sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda Smartlands. Hér fær hún spurningu frá manni sem er ekki ánægður með launin sín. 

Sæl.

Ég er tvítugur karlmaður sem býr og vinnur út á landi. Er frá sveitabæ og hef áhuga á sveitastörfum og ætla mér að taka við búi af föður mínum en það er ekki það sem ég ætla að ræða um hér en svo er með mál og vexti að ég vinn á trésmíðaverkstæði og yfirmaður minn lætur hræðilega við mig.

Ég heyrði frá öðrum starfsmanni að hann fókuserar á alltaf einn aðila til að leggja í vægt í einelti. Hann lætur jafnvel önnur vandamál hjá honum sjálfum bitna á þeim starfsmanni og ég lendi oft í því. Ég er í sveinsnámi í húsasmíði og það eina sem ég er látinn gera er að sópa og fara með rusl á haugana. Ég er búinn að vinna þarna í tvö ár og svo eru aðrir sem hafa unnið í styttri tíma sem fá miklu ábyrgðarmeiri störf. Ég er einnig lægst launaði starfsmaðurinn, er með 2637 á tímann, en tveir aðrir sem eru búnir að vera styttra en ég eru með 2900 á tímann. Ég er orðinn virkilega þreyttur á þessu.

Mér verður svo sem bráðum sama um þennan samning ef þetta heldur svona áfram. Yfirmaðurinn má bara kyngja honum. 

Kveðja, 

GB

Tinna Rut Torfadóttir sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda …
Tinna Rut Torfadóttir sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda Smartlands.

Sæll

Mikið er leitt að heyra að yfirmaður þinn komi svona fram við þig. Vel gert hjá þér að læra húsasmíði og ég heyri að þú ert metnaðarfullur og samviskusamur gagnvart þínu námi. Nú svo sem veit ég ekki hvað þú ert nú þegar búinn að gera í þessu máli. En ég myndi alltaf byrja á því að hvetja þig til þess að ræða við yfirmanninn þinn um þessa upplifun þína. Eins og með það að þér finnst þú ekki fá verkefni við hæfi í vinnunni og einnig með launamuninn.

Þá myndi ég einnig hvetja þig til þess að ræða við trúnaðarmanninn á vinnustaðnum, það hlýtur að vera einn slíkur til staðar sem þú getur leitað til og rætt við um þína stöðu innan fyrirtækisins, upplifun þína og líðan.

Einnig getur þú leitað til stéttarfélagsins þíns og rætt um stöðu þína innan fyrirtækisins. En mikilvægt er að þú standir með sjálfum þér, látir ekki að aðra valta yfir þig með mismunun, eins t.d. verkefni við hæfi og laun. Æfir þig í að setja mörk þar. Þá hlýtur að vera ákveðin starfslýsing sem fylgir þínum samningi í húsasmíði þar sem kemur skýrt fram hvert þitt hlutverk er og hvaða markmið það eru sem þú þarft að vinna að og ná á meðan á samningi stendur. Það hlýtur að vera ábyrgðarmaður á samningnum þínum sem þú getur einnig speglað þína stöðu við?

Ef ekkert lagast og þú búinn að leggja þig fram um að leita lausna þá myndi ég eindregið hvetja þig til að leita annað og klára samninginn þinn þar. Ekki gefast upp, þú ert metnaðarfullur ungur maður sem átt framtíðina fyrir þér.

Gangi þér sem allra best og takk fyrir að hafa samband

Kveðja,

Tinna Rut Torfadóttir sálfræðingur. 

Liggur þér eitthvað á hjarta? Þú getur sent Tinnu spurningu HÉR. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

endurskoðandi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál

lýtalæknir svarar spurningum lesenda