Hin kyngimagnaða spákona Sigga Kling hefur rýnt í stjörnurnar og alheiminn fyrir árið 2022. Það má með sanni segja að árið verður viðburðarríkt hjá flestum en þó viðburðarríkara hjá sumum stjörnumerkjum heldur en öðrum. Það er þó ljóst að árið verður stórkostlega frábært.
Elsku Hrúturinn minn,
það er svo merkilegt að skoða að lífið fer alltaf í hringi og núna ert þú að byrja svo spennandi kafla. Þótt þér hafi fundist þú hafa verið á krossgötum, þá þýðir það samt að vegir liggja til allra átta. Þú ert að sleppa tökunum á þeim köngulóarvef sem þér hefur fundist umlykja þig, en þú rífur þig lausan og það verður miklu auðveldara en þú hefðir nokkurn tíman búist við. Þetta á sérstaklega við um janúar og í byrjun febrúar.
Farðu neðst á forsíðu mbl.is til að lesa meira.
Elsku Tvíburinn minn,
það er kannski ekki hægt að segja við þvílíkt sólarmerki sem þú ert að janúar sé þinn uppáhalds tími. Janúar byrjar á því að gefa þér eins og mastersgráðu í lífinu, listum og fegurð og er talan þrír svo sterktengd inn í orkustöðina þína. Hún þýðir líka að þú getir aðlagað þig að öllum tegundum mannfólksins og skapað það jafnvægi sem aðrir krefjast af þér.
Farðu neðst á forsíðu mbl.is til að lesa meira.
Elsku Krabbinn minn,
þessi tíð hefur verið tilfinningarík fyrir manneskju eins og þig. Það er búið að fylla allan skalann þinn frá núlli og upp í tíu. Við upphaf þessa blessaða árs gefast þér tækifæri til þess að hvílast og njóta til þess að skipta um gír og leyfa lífinu og Alheimsorkunni að leysa vandann. Þinn vandi er bara tengdur huganum og áhyggjum sem eru tilbúningur og verk hugans, og er það eina sem getur lamað þig.
Farðu neðst á forsíðu mbl.is til að lesa meira.
Elsku Meyjan mín,
líf þitt verður auðugra en þig grunar og þær tengingar eru niðurnjörvaðar í Alheimsorkunni þinni við upphaf þessa árs. Þá ertu með töluna sex ríkjandi sem táknar ástina, frjósemi af hverjum toga sem hún birtist og þakklæti yfir því sem þú nú þegar hefur. Þegar þú finnur þetta þakklæti streyma í gegnum þig eflist allt það sem skiptir raunverulega máli.
Farðu neðst á forsíðu mbl.is til að lesa meira.
Elsku Vogin mín,
litríkasta og fallegasta fólkið hefur valið sér að fæðast í þessu merki og þú þarft að muna að vera stolt af sjálfri þér og alls ekki gleyma því sem stóð uppúr á síðasta ári. Strokaðu hitt úr minni þínu og talaðu lítt sem ekkert um þá atburði sem hafa sparkað í þig á síðasta ári þegar hið nýja ár gengur inn í garðinn þinn. Þú byrjar þetta nýja tímabil á hinni andlegu og heilögu tölu sjö og þá er svo mikilvægt að hugsa eins og indíáninn gerði, að tengja sig í jafnvægi í gegnum dýrin og frumkraftinn sem býr í sögunni okkar allra.
Farðu neðst á forsíðu mbl.is til að lesa meira.
Elsku Sporðdrekinn minn,
lífið kemur þér á óvart í upphafi árs. Það er ekki beinlínis hægt að segja að tilveran hafi dekrað við þig síðustu mánuði. Það er bjartsýnin sem ræður ríkjum í þessari óvenjulegu tilveru á hótel Jörð. Þú fyllist af kærleika og þegar það kemur yfir þig þá speglarðu honum yfir allt. Kraftur lífstölunnar fimm er ríkjandi sem leiðir þig í óvenjulegar og betri áttir. Það stendur að upphafið skapi endinn svo að þessi byrjun leiðir þig út árið 2022 þar sem þú kemur sjálfum þér aðallega á óvart. Þar af leiðandi verður þér svo miklu meira sama um vesen eða vandamál sem aðrir byggja í kringum tilvist þína.
Farðu neðst á forsíðu mbl.is til að lesa meira.
Elsku Nautið mitt,
það hefur verið svo mikið af lífsins gátum sem þú hefur þurft að leysa undanfarið og þér hefur fundist stundum þú værir að bugast. Í þessum ljósaskiptum sem ganga í garð á nýju ári verður þú og þarft að taka líf þitt og sauma það saman algjörlega sjálf. Þú ert eins og eikartré og það stendur af sér allan stórsjó.
Farðu neðst á forsíðu mbl.is til að lesa meira.
Elsku Ljónið mitt og takmarkalausi tilfinningaóróinn minn.
Þú sveiflast eins og fáni í fulla stöng í íslenska vindinum, ekkert er fallegra en slík sýn á góðum degi. En þegar þú dregur þig niður í hálfa stöng, veist ekki hvað þú vilt eða hvernig þú ætlar að fara að því, þá lamast orka þín og þegar þér líður þannig skaltu passa þig á hvatvísinni, sem er reyndar dásamlegur eiginileiki, en ekki þegar manni líður illa.
Farðu neðst á forsíðu mbl.is til að lesa meira.
Elsku Bogmaðurinn minn,
það hafa verið mörg tækifæri í kringum þig. Sum hefurðu nýtt vel en önnur hafa farið forgörðum. Í upphafi þessa árs muntu loka því sem þér finnst leiðinlegt. Alheimstalan níu er með þér í upphafi árs og hún gefur þér kraft til að henda öllu því út úr lífi þínu sem pirrar þig og rífur frá þér orkuna. En það sem gekk mjög vel á síðasta ári mun eflast á þessu herrans ári og halda áfram í lífskeðjunni þinni.
Farðu neðst á forsíðu mbl.is til að lesa meira.
Elsku Steingeitin mín,
þú getur þakkað fyrir margt sem hefur gerst á síðasta ári sem í raun gerði þig sterkari og vitrari. Þegar þú getur þakkað í hjarta þínu fyrir erfiðleikana og svartnættið því það gerði þig að þeirri persónu sem þú ert, þá þurrkast út hugarástandið sem þú varst í. Ef þú lendir í einhverju ógurlega erfiðu þá er eins og það sé kastað í þig steinum og þegar þú endurhugsar atburðinn aftur og aftur og talar um hann sí og æ, þá er eins og þú kastir í þig sama steini.
Farðu neðst á forsíðu mbl.is til að lesa meira.
Elsku Fiskurinn minn,
þú tekur fagnandi á móti þessu ári og ferð áfram á ofurkrafti. Janúar færir þér töluna níu sem er andlega tengjandi tala sem segir að þú réttir öðrum hjálparhönd. Því það er nefnilega þannig að aðrir eru þú sem þýðir að í hvert skipti sem þú gefur öðrum ertu að safna í karmabankann þinn.
Farðu neðst á forsíðu mbl.is til að lesa meira.
Elsku Vatnsberinn,
það er mikið ljós sem lýsir þér inn í nýja árið. Við getum sagt að þú sért að vakna til vitundar um enn meiri kærleika og bjartari orku sem smýgur inn í sálina og geislar út frá þér. Til þess að þetta geti orðið 100% veruleiki, skaltu henda út allri reiði og öllu sem tengist veraldlegum hlutum. Fyrstu mánuðirnir einkennast af þessu og reyndar er þetta kraftur framtíðar þinnar eða kraftur ársins.
Farðu neðst á forsíðu mbl.is til að lesa meira.