Sveinn Andri Sveinsson og Kristrún Ösp Barkardóttir voru áberandi í fyrra þegar ástin kviknaði á milli þeirra. Sambandið varði þó ekki nema í nokkra mánuði og lauk í byrjun síðasta sumars. Þegar hausta tók komst Kristrún Ösp að því að hún væri með barni og var óvíst hver faðirinn væri, en tveir komu til greina.
Í byrjun mars fæddist fríðleikspilturinn Baltasar Börkur. Eftir að hafa farið í DNA-próf er ljóst að Sveinn Andri Sveinsson er pabbinn. Þegar Smartland hafði samband við Svein Andra sagðist hann himinlifandi yfir fréttunum.
„Er stoltur yfir því að eiga svona myndarlegan dreng,“ sagði Sveinn Andri.