Söngkonan Anna Mjöll Ólafsdóttir er búin að finna ástina. Sá heppni heitir Luca Ellis og er frægur djasssöngvari í Los Angeles. Anna Mjöll og herra Ellis skráðu sig í samband á Facebook um helgina.
Fyrir rúmlega ári, eða í apríl í fyrra, giftist Anna Mjöll bílasalanum Cal Worthington. Sambandið vakti mikla athygli því herra Worthington er fæddur 1920 og er því 92 ára. Hjónabandið entist þó ekki nema í nokkra mánuði. Á dögunum sagði Anna Mjöll í viðtali að hún hefði alls ekki átt að giftast herra Worthington og játaði að hjónabandið hefði verið mistök.
Anna Mjöll og Luca Ellis hafa starfað töluvert saman. Hinn 6. maí síðastliðinn tróðu þau upp saman á bar Nineteen 12 á The Beverly Hills-hótelinu og var mikil stemning í salnum.
HÉR er hægt að skoða heimasíðu Luca Ellis.