Lætur engan ná í sig

Katie Holmes lætur engan ná í sig. Leikkonan tilkynnti sem kunnugt er á föstudag að hún hefði sótt um skilnað við Tom Cruise. Í ljós hefur komið að hún undirbjó sig vandlega áður en hún steig skrefið til fulls og er bæði komin með leynisímanúmer og nýtt netfang.

Holmes notaði tímann vel undanfarnar vikur og gerði ýmsar viðeigandi ráðstafanir í aðdraganda skilnaðarins áður en hún greindi frá því fyrir helgi að hjónabandi þeirra Cruise væri lokið. Hefur leikkonan meðal annars rekið bæði lífverði sína og öryggisverði og ráðið nýja, sem ekki hafa nein tengsl við fyrirverandi eiginmann hennar.

„Fjölskylda Katie hefur staðið þétt við bak hennar og þau undirbjuggu í þaula hvernig hún ætti að bera sig að við skilnaðinn,“ segir heimildamaður tímaritsins People.

„Katie er búin að skipta út símanúmerinu og komin með leyninúmer þannig að ekki einu sinni hennar elstu vinir ná sambandi við hana. Vinirnir vita ekki neitt, hún er líka komin með nýtt netfang og lætur engan ná í sig,“ segir heimildamaður blaðsins.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

endurskoðandi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál

lýtalæknir svarar spurningum lesenda