Stórleikarinn Tom Cruise yfirgaf Ísland aðfaranótt 3. júlí og fór einkaflugvél hans frá Keflavíkurflugvelli rétt eftir miðnætti. Tökum á myndinni Oblivion átti að ljúka á morgun en þeim var flýtt um fjóra daga vegna skilnaðar Tom Cruise og Katie Holmes.
Með Cruise í för voru börnin hans tvö, Isabella og Connor, sem hann ættleiddi með fyrrverandi eiginkonu sinni, Nicole Kidman. Þau lentu í Los Angeles á afmælisdaginn og eyddu þau afmælisdeginum með föður sínum.