„Hann hefur verið Tom Cruise í 30 ár“

Katie Holmes.
Katie Holmes. mbl.is/AFP

Lesendur ameríska Elle geta lesið á milli línanna í nýjasta viðtalinu við Katie Holmes. Þar játar hún að það sé gjá á milli hennar og Tom Cruise. Viðtalið við leikkonuna var tekið í maí en blaðið er væntanlegt í verslanir um miðjan júlí.

Nokkrum vikum áður en hún sótti um skilnað mætti hún í viðtal við tískutímaritið Elle og þegar hún var spurð út í framtíðina sagðist hún vera ánægð. „Mér finnst ég miklu kynþokkafyllri í dag en þegar ég var í kringum tvítugt,“ sagði hin 33 ára gamla Katie í viðtalinu. „Í dag er ég miklu ánægðari og mér líður betur í eigin skinni.“

Hún var spurð út í hjónaband sitt við Tom Cruise og virtist gefa til kynna að það væri ákveðin fjarlægð á milli þeirra. „Hann hefur verið Tom Cruise í 30 ár. Ég veit hver ég er, hvar ég er og hvert ég er að fara.“

Til þess að fá frið fyrir umheiminum hefur Katie Holmes skipt um netfang og símanúmer eins og sagt var frá í gær. Tom Cruise eyddi hinsvegar afmælisdeginum einn með eldri börnunum tveimur, Isabellu og Connor, í Los Angeles en hann flaug þangað beint frá Keflavík aðfararnótt afmælisdagsins.


Katie Holmes.
Katie Holmes. mbl.is/AFP
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

endurskoðandi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál

lýtalæknir svarar spurningum lesenda