Splunkunýtt Séð og heyrt var að koma inn um lúguna með þeim fréttum að Hannes Smárason sé búinn að finna ástina á ný. Sú heppna heitir Brynja X. Vífilsdóttir. Brynja er þekkt hérlendis því hún er bæði fyrirsæta og fyrrverandi fegurðardrottning. Síðustu ár hefur verið hljótt um Brynju sem hefur verið búsett í Madrid þar sem hún rak meðal annars Karen Millen-verslun.
Á dögunum urðu ritstjóraskipti á Séð og heyrt þegar Björk Eiðsdóttir blaðakona tók við af Lilju Katrínu Gunnarsdóttur.