Ofurfyrirsætan og leikkonan hálfíslenska og hálfindverska Angela Jonsson hefur sem fyrr segir landað aðalhlutverki í stórri Bollywood-mynd en mótleikari hennar er ein mesta kvikmyndastjarna Indlands: Salman Khan.
Þrátt fyrir að ljóst var að Angela fengi aðalhlutverkið í kvikmyndinni átti önnur stór Bollywood-leikkona að leika veglegt aukahlutverk en leikstjóri myndarinnar, Sohail Khan, hefur ákveðið að enginn skuli skyggja á Angelu og því verður allur fókus á Angelu. Vefútgáfa The Times of India greinir frá þessum tíðindum og segir kvikmyndina vera gullið tækifæri fyrir Angelu að festa nafn sitt í sessi.